Varnarhagsmunum Íslands er eins vel fyrir komið og frekast er unnt í varnarsamstarfi við önnur vestræn ríki með aðildinni að NATO og varnarsamningnum við Bandaríkin sem ekkert bendir til að sé í hættu líkt og ítrekað hefur komið fram. Það sem helzt vantar upp á þegar kemur að vörnum landsins er að við Íslendingar öxlum meiri ábyrgð á okkar eigin varnarmálum. Meðal annars er afar mikilvægt í því sambandi að efla Landshelgisgæzluna og lögregluna.
Meðal þess sem nefnt hefur verið er stofnun íslenzks varnarliðs sem er viðkvæmt umræðuefni en engu að síður sjálfsagt og eðlilegt að ræða eins og aðrar hliðar varnarmála þjóðarinnar ef nálgast á viðfangsefnið af ábyrgð. Ætla má að margir teldu í það minnsta íslenzkt varnarlið, sem hefði það meginhlutverk að styrkja varnir landsins en gæti einnig nýzt vel til að mynda í náttúruhamförum eins og velþekkt er í nágrannalöndum okkar, æskilegra en erlent.
Hins vegar er ljóst að slíkt varnarlið gæti ekki varið Ísland nema tímabundið kæmi til allsherjarárásar á landið af miklu fjölmennara ríki. Á hinn bóginn gæti það hæglega skipt sköpum að geta varizt árásarher um stund þar til vinveittar þjóðir kæmu til aðstoðar og hindrað þannig að landið yrði hernumið. Mun erfiðara og dýrkeyptara í mannslífum talið er í ljósi sögunnar að frelsa hernumið land en að koma því til hjálpar áður en til þess kemur.
Flestir herir í Evrópu og víðar um heiminn hafa fyrst og fremst sama tilgang ef til slíkra aðstæðna kemur. Að halda út þar til hjálp berst. Þar á meðal og ekki sízt herir hinna Norðurlandanna. Þess utan er tilgangurinn að fæla önnur ríki frá því að efna til ófriðar. Leiðin til þess að tryggja friðinn er enda ekki að leggja af landvarnir. Ekki frekar en að glæpum verði eytt með því að leggja niður lögregluna. Standa þarf vörð um friðinn rétt eins og lög og reglu.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Greinin er byggð á grein höfundar sem birtist í Morgunblaðinu 12. ágúst 2024)
(Ljósmynd: Bandarísk flotadeild. Eigandi: Bandaríski sjóherinn)
