Vangaveltur hafa verið uppi um það hvað muni mögulega taka við hjá Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, í kjölfar þess að hún beið ósigur fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur, þingmanni flokksins, í formannskjörinu á landsfundi hans í byrjun þessa mánaðar. Hvort hún geti hugsað sér að vera óbreyttur þingmaður í stjórnarandstöðu næstu fjögur árin sitji ríkisstjórnin allt kjörtímabilið eða hvort hún leiti á önnur mið.
Fram kom í máli Áslaugar við ýmsa vini hennar og kunningja síðasta haust að hún velti því alvarlega fyrir sér að hætta mögulega í stjórnmálum meðal annars í ljósi slaks fylgis Sjálfstæðisflokksins í könnunum. Þá sagði hún við ýmsa eftir að hún gaf kost á sér í formannsstól flokksins að hún kynni að yfirgefa stjórnmálin næði hún ekki kjöri. Skiljanlegt er að vera í stjórnarandstöðu hefði orðið þolanlegri sem flokksformaður en einungis sem óbreyttur þingmaður.
Ferill Áslaugar í stjórnmálum til þessa hefur annars verið einkar athyglisverður. Hún hóf snemma afskipti af stjórnmálum í ungliðahreyfingu Sjálfstæðisflokksins og var meðal annars formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hún tók sæti á Alþingi haustið 2016 og varð árið eftir formaður utanríkismálanefndar sem hún var þar til hún varð ráðherra 2019. Hún sat síðan í ríkisstjórn allt þar til eftir kosningarnar í lok nóvember.
Með öðrum orðum hefur Áslaug aldrei kynnzt því að vera óbreyttur þingmaður í stjórnarandstöðu. Hún var vissulega óbreyttur þingmaður fyrsta árið sitt á þingi en hins vegar stjórnarþingmaður. Það þykir alltaf mikið stökk niður á við að fara frá því að vera ráðherra og í það að vera í stjórnarandstöðu. Hvað þá eftir langan tíma við ríkisstjórnarborðið. Tvennt er þá í boði. Halda út þar til flokkurinn kemst aftur í stjórn eða fara að gera eitthvað annað.
Margir fyrrverandi þingmenn hafa átt erfitt með að finna starf eftir að hafa hætt á þingi hvort sem það hefur verið að eigin frumkvæði eða ekki. Ólíklegt verður þó að telja að sú yrði raunin í tilfelli Áslaugar. Skiljanlegt væri ef ungri metnaðarfullri konu þætti ekki spennandi tilhugsun að verja næstu árum í stjórnarandstöðu. Ég tel þó að hún eigi fullt erindi í stjórnmálin sem fyrr hvað sem líði niðurstöðu formannskjörsins og vona að hún haldi ótrauð áfram.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ræðir við bandarískan hermann. Eigandi: Bandariski sjóherinn)