Fer Þórdís Kolbrún í Viðreisn?

Vangaveltur um það hvort Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi varaformaður flokksins, kunni hugsanlega að ganga til liðs við Viðreisn hafa fengið byr undir báða vængi í kjölfar frétta af því að hún hafi opnað á mögulega inngöngu í Evrópusambandið á málþingi í Háskóla Íslands 14. marz síðastliðinn.

Hafa meðal annars verið rifjuð upp afar jákvæð orð sem Þórdís lét falla í garð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, í kjölfar þess að hún afhenti Þorgerði lyklavöldin að utanríkisráðuneytinu. Þar hafi Þórdís ekki látið nægja að óska Þorgerði velfarnaðar í starfi heldur beinlínis lýst yfir ánægju sinni með komu hennar í ráðuneytið.

Mörgum kom á óvart þegar Þórdís tilkynnti í janúar að hún gæfi ekki kost á sér sem formaður Sjálfstæðisflokksins en ekki síður að hún skyldi ekki heldur sækjast eftir áframhaldandi varaformennsku. Velta nú ýmsir vöngum yfir því hvort Þórdís horfi nú til þess að verða arftaki Þorgerðar fyrst ekki kom til þess að hún yrði formaður Sjálfstæðisflokksins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Eigandi: Utanríkisráðuneyti Eistlands – Attribution 2.0 Generic)