Fara gegn eigin stefnu og kjósendum

Miklu fleiri stuðningsmenn Miðflokksins, Sjálfstæðisflokksins, Flokks fólksins og Framsóknarflokksins sögðust andvígir frumvarpi um bókun 35 við EES-samninginn samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem Prósent vann fyrir Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum, í október en þeir sem sögðust hlynntir því. Flokkur fólksins talaði gegn málinu allt þar til hann sneri við blaðinu til þess að komast í ríkisstjórn í kjölfar þingkosninganna í lok nóvember.

Frumvarpið var fyrst lagt fram af Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, þáverandi utanríkisráðhera, fyrir tveimur árum en það gengur út á það bundð verði í íslenzk lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið hér á landi i gegnum EES-samninginn gangi framar en löggjöf sem á sér innlendan uppruna. Arftaki hennar á ráðherrastóli, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, tók síðan við málinu og hefur lagt fram hliðstætt frumvarp sem er til meðferðar á Alþingi.

„Mest andstaðan við frum­varpið er á meðal stuðnings­manna Miðflokks­ins sam­kvæmt könn­un­inni eða 61% á móti 16% sem eru því hlynnt. Næst koma stuðnings­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins og Flokks fólks­ins með 45% and­víg frum­varp­inu en 23% og 20% hlynnt því. Þá eru 42% stuðnings­manna Sjálf­stæðis­flokks­ins andvíg frum­varp­inu en 16% hlynnt. Loks er tæp­ur þriðjung­ur stuðnings­manna Sósíalistaflokksins and­víg­ur eða 32% en 22% hlynnt,“ sagði í tilkynningu frá Heimssýn.

„Fróðlegt er að skoða stöðuna ef aðeins er miðað við þá sem taka af­stöðu með eða á móti frum­varpi ut­an­rík­is­ráðherra á meðal stuðnings­manna áður­nefndra flokka. Þá eru 79% stuðnings­manna Miðflokks­ins á móti frum­varp­inu, 72% stuðnings­manna Sjálf­stæðis­flokks­ins, 69% stuðnings­manna Flokks fólks­ins, 66% stuðnings­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins og 59% stuðnings­manna Sósí­al­ista­flokks Íslands,“ sagði enn fremur í tilkynningunni um niðurstöður könnunarinnar.

Forystumenn Flokks fólksins hafa lýst því yfir að þeir ætli að samþykkja frumvarp Þorgerðar Katrínar um bókun 35 vegna þess að nú sé flokkurinn í ríkisstjórn þrátt fyrir að hafa meðal annars ítrekað vakið máls á því að það málið færi í bága við stjórnarskrá lýðveldisins. Ýmsir lögspekingar eins og Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar, hafa bent á það að bókun 35 standist ekki stjórnarskrána og þess vegna hafi hún ekki verið innleidd sem slík á sínum tíma.

Kæmi til þess að frumvarpið næði ekki fram að ganga og málið færi hugsanlega í framhaldinu fyrir EFTA-dómstólinn væri það versta sem gæti gerzt að dómstóllinn kæmist að þeirri niðurstöðu að innleitt regluverk í gegnum EES-samninginn ætti að hafa forgang á löggjöf innlenda að uppruna. Með öðrum orðum nákvæmlega það sem frumvarpið felur í sér. Þá væri allavega möguleiki á því að niðurstaðan yrði hagfelld fyrir Ísland. Með frumvarpinu er hann að engu gerður.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)