„Hamas er að drepa okkur, ekki Ísrael“

Mér er minnisstæð frétt sem ég las á fréttavef norska dagblaðsins Verdens Gang á meðan á átökum Ísraelshers og Hamas stóð sumarið 2014 og segir að mínu mati mjög mikið um ástand mála á Gaza og þær hörmulegu aðstæður sem almennir borgarar þar búa við. Dagblaðið hafði sent blaðamenn á staðinn til þess að fjalla um átökin milliliðalaust og lýstu þeir í fréttinni meðal annars aðstæðum á sjúkrahúsi í Gazaborg í kjölfar loftárása Ísraelshers og ræddu við Palestínumenn sem leitað höfðu þangað eftir aðhlynningu og skjóli í kjölfar árásanna. Frétt blaðamannanna hófst á eftirfarandi orðum:

„Líkgeymslurnar eru fullar. Lík vafin í blóðug lök eru lögð beint á gólfið. Ringulreið ríkir og gríðarleg örvænting. Aðstandendur hinna látnu ýta hverjir við öðrum í örvæntingu sinni þar sem ekki er hægt að koma fleiri líkum fyrir. Í dyrunum stendur kona sem fengið hefur nóg. Yfirkomin af sorg og reiði hrópar hún: „Það er Hamas sem er að drepa okkur, ekki Ísrael.“ Fólkið í kringum hana þegir, aðrir reyna að róa hana niður. Hún hefur greinilega farið yfir ákveðið strik. Hryllingur og ótti eru hluti af stjórnarstefnu Hamas á Gaza.“ Lífshættulegt getur verið að gagnrýna Hamas opinberlega á Gaza.

Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa um langt árabil fordæmt ógnarstjórn og ofbeldi Hamas í garð Palestínumanna á Gaza. Fjöldi þeirra hefur þannig verið myrtur af öryggissveitum samtakanna og þurft að þola pyntingar og hótanir af hálfu þeirra á þeim tíma sem þau hafa farið með stjórn svæðisins. Mannréttindasamtökin hafa einnig fordæmt til dæmis ofbeldi Hamas í garð Palestínumanna sem mótmælt hafa stjórnarstefnu samtakanna á Gaza á undanförnum árum. Þá hafa öryggissveitirnar bæði beitt blaðamenn og starfsmenn mannréttindasamtaka grófu ofbeldi.

Margir viðmælendur VG á Gaza lýstu megnri óánægju sinni með stjórn Hamas en treystu sér þó ekki til þess að koma fram undir nafni. „Við hötum Ísrael […] en við höfum haft það verra eftir að Hamas tók völdin,“ sagði einn viðmælenda blaðsins. „Ísrael hefur alltaf mismunað og gert lífið erfiðara fyrir Palestínumenn. Hamas hyglir og mismunar á Gaza,“ sagði annar. „Við fáum ekki að lifa lífinu sem við viljum lifa. Hamas skiptir sér af öllu sem við gerum.“ Og enn annar sagði við blaðamennina: „Hamas hefur svipt okkur lífsánægjunni.“ Hamas er einfaldlega óvinur Palestínumanna.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Vígamenn Hamas. Eigandi: Fars Media Corporation – Attribution 4.0 International)