Hafa myrt fjölda Palestínumanna

Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa um langt árabil fordæmt ógnarstjórn og ofbeldi hryðjuverkasamtakanna Hamas í garð Palestínumanna á Gaza. Fjöldi Palestínumanna hefur þannig verið myrtur af öryggissveitum samtakanna á þeim tíma sem þau hafa farið með stjórn svæðisins samkvæmt fréttum mannréttindasamtakanna. Ekki sízt vegna ásakana um að hafa átt í samstarfi við ísraelsk stjórnvöld en einnig fyrir að styðja Fatah, hina helztu hreyfingu Palestínumanna. Þá hefur fjöldi Palestínumanna þurft að þola pyntingar og hótanir af hálfu hryðjuverkasamtakanna.

Meðal annars hefur Amnesty International fordæmt þá framgöngu Hamas að nota tækifærið þegar Ísraelsher hefur gert loftárásir á Gaza til þess að myrða Palestínumenn sem samtökunum hefur verið í nöp við eða beita þá öðru ofbeldi. Þeir hafa síðan verið sagðir hafa farizt í árásunum. Þá ekki sízt stuðningsmenn Fatah. Öryggissveitum Hamas hafi verið gefinn laus taumurinn í þeim efnum. Ásakanir um samstarf við Ísrael hafi gjarnan verið settar fram sem yfirskin. Margir ásakaðir um slíkt hafi verið myrtir á meðan þeir sátu í fangelsi og biðu eftir því að koma fyrir dómara.

Mannréttindasamtökin hafa einnig fordæmt til dæmis ofbeldi Hamas í garð Palestínumanna sem mótmælt hafa stjórnarstefnu samtakanna á Gaza á undanförnum árum. Ekki sízt hagstjórn þeirra. Skipuleggjendur mótmæla hafi til að mynda verið handteknir og pyntaðir og öryggissveitir Hamas ráðist á friðsama mótmælendur. Þá hafi öryggissveitirnar bæði beitt blaðamenn og starfsmenn mannréttindasamtaka grófu ofbeldi. Meðal annars fyrir þá sök að safna upplýsingum um ofbeldi samtakanna í garð almennra borgara. Hamas er einfaldlega óvinur Palestínumanna.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Vígamenn Hamas. Eigandi: Fars Media Corporation – Attribution 4.0 International)