Sjálfstæðisflokkurinn aftur stærstur

Sjálfstæðisflokksins mælist með mest fylgi í fyrsta sinn í um tvö ár samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar Maskínu eða 24,3% en um er að ræða fyrstu fylgiskönnunina eftir að Guðrún Hafsteinsdóttir var kjörin formaður flokksins. Könnunin var gerð dagana 5. til 19. marz eða rúmlega fyrstu tvær vikur Guðrúnar á formannstóli hans.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst um 2,9 prósentustig á milli skoðanakannana en sú síðasta á undan þessari var gerð fyrir um mánuði þegar fyrir lá að Bjarni Benediktsson ætlaði ekki að gefa áfram kost á sér sem formaður flokksins og að nýr formaður yrði kjörinn á landsfundi hans sem fram fór um síðustu mánaðarmót þar sem Guðrún vann sigur.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með nánast sama fylgi og hann hlaut í þingkosningunum 2021 sem var 24,4% en flokkurinn hefur ekki mælzt með slíkt fylgi lengi. Ljóst er því að Sjálfstæðisflokkurinn er á siglingu samkvæmt skoðanakönnuninni í kjölfar þess að Guðrún tók við flokknum og verður áhugavert að fylgjast með næstu könnunum.

Miðað við skoðanakönnunina er Samfylkingin með næstmest fylgi eða 23,3%. Flokkurinn hefur mælst með mest fylgi undanfarin tvö ár sem var að sama skapi raunin í þingkosningunum í lok nóvember. Þá mælist Viðreisn með 14,8%, Miðflokkurinn með 10,9%, Flokkur fólksins 8,5% og Framsóknarflokkurinn með 6,8%.

Vert er að hafa í huga að skoðanakönnunin var gerð áður en Ásthildur Lóa Þórsdóttir sagði af sér sem menntamálaráðherra 20. marz, daginn eftir að könnuninni lauk. Hugsanleg áhrif málsins munu væntanlega allavega að einhverju leyti koma fram í næstu könnunum en fylgiskönnun Gallups er til að mynda væntanleg um næstu mánaðarmót.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)