Forsendan ekki sterkur efnahagur

Tal um að engin raunveruleg hernaðarleg hætta stafi af Rússlandi vegna þess að efnahagur landsins standi höllum fæti stenzt ekki skoðun. Ekki þarf annað en að skoða stöðu efnahagsmála í Þýzkalandi í aðdraganda síðari heimsstyrjaldarinnar til þess að sjá að gott efnahagsástand er engin forsenda þess að farið sé út í stríð. Slæmt efnahagsástand getur þvert á móti beinlínis verið ástæða þess að gripið sé til þess ráðs. Þá ekki sízt í þeim tilgangi að komast yfir auðlindir.

Frá því er skemmst að segja að efnahagur Þýzkalands var engan veginn sjálfbær við upphaf heimsstyrjaldarinnar. Þvert á móti hafði hann verið fjármagnaður með viðvarandi halla á ríkissjóði og lántökum með ýmsum hætti. Greiða átti skuldir ríkissjóðs landsins með yfirtöku á auðlindum og auðæfum hernumdra ríkja og íbúa þeirra. Þá var mikilvægur hluti af efnahagsstefnu nasistastjórnarinnar að gera Þýzkaland sem mest sjálfu sér nægt og þar með óháð öðrum.

Markvisst var að sama skapi unnið að því árum saman í aðdraganda innlimunar Krímsskaga í Rússland árið 2014 og síðan innrásar rússneska hersins í Úkraínu 2022 að gera Rússa sem mest óháða innflutningi frá öðrum ríkjum. Þá einkum varðandi grunnþarfir eins og matvæli. Hins vegar er Rússland margfalt auðugara af náttúruauðlindum en Þýzkaland. Með öðrum orðum var stríðsrekstur Þýzkalands þannig í raun aldrei sjálfbær. Það kom þó ekki í veg fyrir stríð.

Fyrir styrjöldina hafði miklu púðri verið eytt í árangurslausar tilraunir til þess að reyna að friðmælast við nasistaforingjann Adolf Hitler. Með þátttöku Bandaríkjanna í henni og eftir að Þjóðverjar fóru sífellt meira halloka í stríðinu gegn Rússum, ekki sízt vegna mikillar aðstoðar Bandaríkjamanna við þá í formi hergagna, var í raun einungis tímaspursmál hvenær Þýzkaland yrði sigrað. Það kostaði engu að síður áralangt stríð með gríðarlegu mannfalli og eyðileggingu.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Rússneskur heiðursvörður í Moskvu, höfuðborg Rússlands. Eigandi: Bandaríski flugherinn)