Farnir að hræðast kjósendur

Fram kom meðal annars í máli Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær að ríkisstjórn hennar teldi ekki rétt að staldra við mál sem ekki væri samstaða um innan hennar heldur leggja áherzlu á mál sem stjórnarflokkarnir væru samstíga um. Það sama sem þeir gagnrýndu síðustu ríkisstjórn fyrir. Þá sagði hún að áherzla væri á það að taka á erfiðum málum strax í stað þess að bíða þar til við lok kjörtímabilsins þegar allir væru orðnir „hræddir við kosningar“ og engu hægt að koma í gegn. Sem sagt farnir að hræðast kjósendur.

Kristrún er vitanlega ekki fyrsti stjórnmálamaðurinn sem leggur áherzlu á það að afgreiða erfið mál þegar sem lengstur tími er þar til kjósendur fái að segja skoðun sína á þeim í kosningum. Treysta á gullfiskaminni kjósenda eins og það hefur stundum verið orðað í umræðunni. Mögulega er þó rétt að hrósa henni fyrir þá hreinskilni að segja berum orðum á opinberum vettvangi að ríkisstjórnin ætli að taka á erfiðum málum fyrir stjórnina sem fyrst til þess að þau verði ekki á milli tannanna á kjósendum í aðdraganda næstu kosninga. Kristrún veit eins og aðrir að til þeirra gæti komið hvenær sem er.

Hitt er svo annað mál að þetta viðhorf ríkisstjórnarinnar rímar afar vel við þá stefnu bæði Samfylkingarinnar og Viðreisnar að Ísland gangi í Evrópusambandið þar sem völdin sem ríki sambandsins hafa framselt til stofnana þess eru í flestum tilfellum í höndum embættismanna sem enginn kaus til að fara með þau. Eru þannig utan seilingar kjósenda. Ráðamenn í ríkjum Evrópusambandsins geta síðan bent kjósendum réttilega á það að valdið til þess að taka tiltekna ákvörðun sé ekki í þeirra höndum lengur heldur sambandsins sem aftur býr við lítið sem ekkert lýðræðislegt aðhald.

Hvað Flokk fólksins varðar er skiljanlegt að hann vilji að sama skapi taka fyrir þau mál sem erfið þykja fyrir ríkisstjórnina sem fyrst áður en kjósendur gangi að kjörborðinu í ljósi allra þeirra stefnumála flokksins sem gefin voru upp á bátinn til þess að komast í ríkisstjórn. Jafnvel mál sem flokksformaðurinn Inga Sæland sagði forsendu fyrir þátttöku í ríkisstjórn. Fyrir vikið kemur ekki mjög á óvart að stjórnarflokkarnir skuli vera ágætlega samstíga í þessum efnum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)