„Vitum ekkert hvað við erum að gera“

„Mér finnst ég gera lítið annað á þinginu en að innleiða einhverjar reglur frá Evrópusambandinu,“ sagði Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður og þáverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í Bítinu á Bylgjunni 3. febrúar 2014 þar sem hann ræddi við þáttarstjórnendur. Þingmenn væru jafnvel að innleiða meira en þyrfti að gera vegna þess að stjórnsýslan hér á landi réði engan veginn nógu vel við það verkefni að fylgjast með regluverksframleiðslu sambandsins.

Spurður hvort þingmenn kynntu sér regluverkið frá Evrópusambandinu sem tekið væri upp í gegnum aðild Íslands að EES-samningnum og næðu alveg utan um það allt sagði Brynjar að svo væri alls ekki að hans mati, verandi sjálfur lögmaður. „Nei, nei nei. Auðvitað vitum við ekkert hvað við erum að gera, fæst okkar held ég.“ Skilaboðin væru einfaldlega þau að þetta væri regluverkið sem þingmenn ættu að innleiða og á þeim forsendum færi það í gegnum þingið.

„Það eru alls konar hlutir í þessum [EES-] samningi sem ég hef aldrei skilið af hverju við þurfum að fara eftir regluverki þeirra [Evrópusambandsins] með. Mér finnst það ekki einu sinni tengjast þessum innri markaði í raun,“ sagði Brynjar einnig með vísan til þess vaxandi og oft á tíðum íþyngjandi regluverks fyrir bæði atvinnulífið og almenning sem taka þyrfti upp í gegnum EES-samninginn. „Það er svo dýrt, aðgöngumiðinn að þessum innri markaði er rándýr fyrir okkur.“

Málið var einnig til umræðu í þættinum Þingvöllum á K100 11. nóvember 2018 þar sem Brynjar benti á að sífellt væri krafizt meira framsal valds frá Íslandi. „Þetta er vandinn við þennan [EES-] samning. Það sem gerist alltaf er að það er alltaf gengið lengra og lengra. Framsalið á valdinu verður alltaf meira og meira. Þá er spurningin: Eigum við alltaf að teygja okkur lengra í þessa átt eða eigum við að spyrna niður fæti og segja: „Þetta er orðið eitthvað of mikið“?“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fánar aðildarrríkja EFTA ásamt fána Evrópusambandsins. Eigandi: EFTA)