Hafa hafnað inngöngu í ESB í 20 ár

Meirihluti Norðmanna er andvígur því að Noregur gangi í Evrópusambandið samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar fyrirtækisins Verian fyrir norsku sjónvarpsstöðuna TV 2. Samkvæmt umfjöllun á vefsíðu stöðvarinnar eru 58,6% andvíg inngöngu í sambandið og 41,4% hlynnt sé aðeins miðað við þá sem tóku afstöðu með og á móti. Meirihluti hefur verið andvígur því að gengið verði í Evrópusambandið í öllum könnunum sem birtar hafa verið í Noregi undanfarin 20 ár.

Fátt ef eitthvað bendir til þess að Noregur eigi eftir að ganga í Evrópusambandið þrátt fyrir að samþykkt hafi verið á landsfundi Hægriflokksins nýverið að lögð verði áherzla á inngöngu í sambandið þvert á vilja formannsins, Ernu Solberg. Flokkurinn hefur enda verið hlynntur því að gengið verði í Evrópusambandið áratugum saman án þess að orðið hafi af því. Til þess að mynda ríkisstjórn þarf hann aðra flokka með sér. Einkum Framfaraflokkinn sem hafnar alfarið inngöngu í sambandið.

Framundan er landsfundur Verkamannaflokksins. Sögulega hefur flokkurinn líkt og Hægriflokkurinn verið hlynntur því að Noregur gangi í Evrópusambandið. Núverandi stefna hans er þó ekki afgerandi í þeim efnum. Oft áður hafa þessir flokkar, sem yfirleitt hafa verið tveir stærstu flokkar landsins, verið með inngöngu í stefnuskrá sinni án þess að til umsóknar hafi komið. Ekki sízt vegna þess að þeir hafa ekki getað starfað saman og þurft að vinna með flokkum andvígum málinu.

Forysta Verkamannaflokksins hefur sagt að hún telji ekki tímabært að leggja áherzlu á inngöngu í Evrópusambandið sem muni aðeins sundra norsku þjóðinni þegar meiri þörf sé á samstöðu en oft áður. Hvað samþykkt verður á landsfundi flokksins á eftir að koma í ljós en jafnvel þó niðurstaðan yrði sú að hann beiti sér fyrir því að Noregur gengi í sambandið líkt og Hægriflokkurinn hefur sú staða sem áður segir oft verið fyrir hendi áður án þess að úr hafi orðið umsókn um inngöngu í það.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Norskir fánar fyrir utan konungshöllina í Ósló, höfuðborg Noregs. Eigandi: Maxxii)