Frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um bókun 35 við EES-samninginn var afgreitt úr utanríkismálanefnd Alþingis í vikunni. Meirihluti nefndarinnar lagði til að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt en hann skipuðu fulltrúar stjórnarflokkanna ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins.
Vakið hefur athygli að Þórdís hafi þannig ekki aðeins samþykkt frumvarpið úr utanríkismálanefndinni, sem kom ekki endilega á óvart þar sem um er að ræða frumvarp sem hún lagði upphaflega fram sjálf sem utanríkisráðherra og reyndi í tvígang að keyra í gegnum þingið, heldur hafi hún kosið að ganga skrefinu lengra og ganga til liðs við stjórnarliða við afgreiðslu þess.
Fulltrúi Flokks fólksins í nefndinni, Sigurður Helgi Pálmason, studdi einnig afgreiðslu frumvarpsins en flokkurinn hafði alfarið hafnað frumvarpinu áður en hann tók sæti í ríkisstjórn og sneri við það algerlega við blaðinu í þeim efnum. Meðal annars höfðu forystumenn flokksins bent réttilega á það að frumvarpið bryti í bága við fullveldisákvæði stjórnarskrárinnar.
Frumvarpið gengur sem kunnugt er út á það að lögfest verði að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn gangi framar löggjöf sem á sér innlendan uppruna. Verði frumvarpið að lögum verður þannig til ný forgangsregla í íslenzkum rétti sem miðast mun við það eitt og aðeins eitt að um sé að ræða innleitt regluverk frá sambandinu.
Mikil andstaða hefur verið við frumvarpið innan Sjálfstæðisflokksins en samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem Prósent vann fyrir Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum, síðasta haust sögðust einungis 16% stuðningsmanna flokksins vera hlynnt því. Þá hafa ekki síður verið miklar efasemdir um málið í röðum þingmanna hans.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Eigandi: European People’s Party – Creative Commons Attribution 2.0 Generic)

