Tal Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um varnarsamstarf við Evrópusambandið er sérstakt í ljósi þess að Ísland á þegar í varnarsamstarfi við nær öll ríki þess innan NATO fyrir utan fjögur, Írland, Austurríki, Kýpur og Möltu sem eðli málsins samkvæmt búa yfir takmarkaðri varnargetu. Þá gengu bæði Svíþjóð og Finnland í NATO einkum vegna þess að ríkin töldu sig ekki geta stólað á Evrópusambandið þegar kæmi að varnarmálum.
Spurður á ráðstefnu NATO-þingsins í Helsinki, höfuðborg Finnlands, haustið 2022 hvers vegna finnsk stjórnvöld hefðu sótt um inngöngu í NATO þegar landið væri þegar í Evrópusambandinu svaraði Pekka Haavisto, þáverandi utanríkisráðherra landsins í ríkisstjórn undir forystu finnskra jafnaðarmanna, því til að ekki væri hægt að treysta á varnarskuldbindingar sambandsins. Fulltrúi Svíþjóðar á ráðstefnunni var í framhaldinu spurður sömu spurningar og svaraði á sömu nótum.
Vandséð er hverju varnarsamstarf við Evrópusambandið, sem þess utan er ekki varnarbandalag ólíkt NATO, ætti að bæta við í þeim efnum. Tilgangur Þorgerðar er ljóslega einkum sá að tengja Ísland meira við sambandið í þeim tilgangi að færa landið nær inngöngu í það í samræmi við meginstefnumál Viðreisnar. Sú staðreynd að ríki sem þegar eru innan Evrópusambandsins telja sig ekki geta treyst sambandinu þegar kemur að varnarmálum ætti að segja meira en margt annað.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: Mfa.gov.ua – Attribution 4.0 International)