Fjöldi þingmanna sakaður um lögbrot

Fjölmörg spillingarmál hafa komið upp á vettvangi þings Evrópusambandsins á liðnum árum rétt eins og innan fleiri stofnana sambandsins. Til að mynda í desember 2022 þar sem Eva Kaili, sem þá var einn af varaforsetum þingsins, var handtekin af belgísku lögreglunni ásamt fleiri þingmönnum sökuð um að hafa þegið mútur frá stjórnvöldum í Katar um árabil í tengslum við störf þeirra sem þingmenn. Til að mynda fundust pokar fullir af reiðufé við húsleit á heimili hennar.

Haustið 2018 hafnaði dómstóll Evrópusambandsins enn fremur kröfu um að þingmenn á þingi sambandsins þyrftu að upplýsa með hvaða hætti þeir ráðstöfuðu mánaðarlegum greiðslum til þeirra, til þess að standa undir útgjöldum vegna reksturs skrifstofa í kjördæmum þeirra í heimalöndunum, á þeim forsendum að það færi í bága við friðhelgi einkalífs þeirra. Rannsókn blaðamanna hafði meðal annars leitt það í ljós að fjölmargar slíkar skrifstofur voru ekki til í raun.

Fjallað var um það í evrópskum fjölmiðlum fyrr á árinu, í aðdraganda kosninga til þings Evrópusambandsins sem fram fóru í júní á síðasta ári, að fjórðungur þeirra ríflega 700 þingmanna sem sæti áttu á þinginu fyrir kosningarnar, hátt í 200 manns, hefði verið sakaður um ýmis lögbrot og misferli. Þar á meðal um spillingu, fjárdrátt og kynferðislega áreitni. Þá var í ófáum tilfellum einnig um að ræða vafasöm tengsl við erlenda ráðamenn. Vitanlega allt til mikillar fyrirmyndar…

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þinghús Evrópusambandsins í Strasbourg. Eigandi: Evrópusambandsþingið)