Hvernig verður ríkisstjórnin skipuð?

Vinsæll samkvæmisleikur þegar stjórnarmyndunarviðræður eru í gangi er að spá fyrir um það hvernig næsta ríkisstjórn verði samansett. Fari svo að yfirstandandi viðræður beri tilætlaðan árangur og sigli ekki í strand, sem vitanlega getur hvenær sem er gerzt, ætla ég að koma með spá um það hvernig fyrirhuguð ríkisstjórn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins kunni að líta út. Hér er þó ekki um að ræða samsetningu sem ég myndi vilja sjá heldur einungis það sem ég tel líklegt.

Formenn flokkanna hafa talað um að fækka ráðuneytum frá því sem var í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og VG en þá voru ráðuneytin tólf og eru enn í núverandi starfsstjórn þó ráðherrarnir séu færri. Ég geri ráð fyrir því að ráðuneytin verði tíu og að gróf verkaskipting með þeim hætti sem fram kemur hér fyrir neðan. Þá geri ég ráð fyrir því að Samfylkingin fái fjögur ráðuneyti og Viðreisn og Flokkur fólksins þrjú hvor með hliðsjón af fylgi flokkanna.

Mögulega kann þó að koma til þess að Þorgerður Katrín verði forsætisráðherra, meðal annars í ljósi langrar reynslu hennar á Alþingi (1999-2013 og frá 2016) og þess að hún er sú eina af oddvitum flokkanna og þeim sem nefndir eru hér að neðan sem gegnt hefur ráðherraembætti. Fyrst fyrir Sjálfstæðisflokkinn og síðan Viðreisn. Ekki er ólíklegt að Kristrún væri að sama skapi frekar til í að setjast í stól fjármálaráðherra en forsætisráðherra í ljósi bæði menntunar sinnar og bakgrunns.

Hvað aðra á listanum varðar hefur til dæmis Inga Sæland meðal annars lýst áhuga sínum á félagsmálaráðuneytinu. Alma er fyrrverandi landlæknir og Kristrún hefur sagt hana heilbrigðisráðherraefni Samfylkingarinnar. Þorbjörg Sigríður er lögfræðingur og hefur til dæmis starfað sem saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara. Hanna Katrín hefur starfað víða innan viðskiptalífsins og menntuð á því sviði. Þá er Ásthildur Lóa menntaður kennari og starfaði lengi sem slíkur.

Hvað Eyjólf varðar hefur Guðmundur Ingi Kristinsson setið kjörtímabili lengur á þingi fyrir Flokk fólksins. Hins vegar hefur Eyjólfur verið eins konar talsmaður flokksins í sjávarútvegsmálum auk þess að vera þingmaður fyrir kjördæmi þar sem bæði sjávarútvegur og landbúnaður skipta miklu. Þá má geta þess að yrði þetta niðurstaðan yrðu sjö konur ráðherrar og þrír karlar. Það yrði í fyrsta sinn sem konur væru meirihluti ráðherra en til þessa hafa þær í mesta lagi verið helmingurinn.

Forsætisráðherra: Kristrún Frostadóttir
Fjármálaráðherra: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Utanríkisráðherra: Logi Már Einarsson
Heilbrigðisráðherra: Alma Möller
Matvælaráðherra: Eyjólfur Ármannsson
Félagsmálaráðherra: Inga Sæland
Umhverfis- og innviðaráðherra: Jóhann Páll Jóhannsson
Dómsmálaráðherra: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra: Hanna Katrín Friðriksson
Menntamálaráðherra: Ásthildur Lóa Þórsdóttir

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)