Hlutunum snúið algerlega á haus

„Fólk er virkilega að halda að sér höndum. Fólk er hrætt. Fólk er tvístígandi. Ég finn fyrir svona eins og fólk vill loka sig inni og loka að sér og láta ekki neitt á sér bera,“ var haft eftir Magnúsi Þorkeli Bernharðssyni, prófessor í sögu Mið-Austurlanda við Williams College í Massachusetts í Bandaríkjunum, á fréttavef Ríkisútvarpsins í gær vegna skilyrða sem ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur sett fyrir áframhaldandi opinberum fjárframlögum til háskóla í landinu.

Meðal annars hefur ríkisstjórn Trumps sett það skilyrði að ekki verði lengur tekið inn í myndina hvort nemendur tilheyri tilteknum minnihlutahópum við innritun í háskólana. Þá hefur það verið sett sem skilyrði að þeim nemendum, sem fóru fyrir mótmælum á síðasta ári gegn hernaði Ísraels á Gaza, verði vísað úr skólunum. Mótmælin fóru fram með þeim hætti að gyðingar á meðal nemenda óttuðust mjög um öryggi sitt. Þá urðu þeir fyrir aðkasti annarra nemenda í skólanum.

Var yfirstjórn Harvard-háskóla harðlega gagnrýnd fyrir það að bregðast ekki með viðeigandi hætti við því með hvaða hætti staðið var að mótmælunum sem meðal annars fólu í sér notkun slagorða sem snúast um eyðingu Ísraels. Einnig var í röðum mótmælenda lýst yfir stuðningi við hryðjuverkasamtökin Hamas sem stýrt hafa Gaza með ógnarstjórn á liðnum árum og haft tortímingu Ísraels á stefnuskrá sinni. Við Íslendingar höfum ekki farið varhluta af slíkum mótmælum.

„Það eru ekki eðilegar eða ásættanlegar aðstæður þegar landslið þarf að spila tvo leiki fyrir luktum dyrum, mæta í lögreglufylgd og hafa áhyggjur af öryggi sínu bæði á vellinum og utan hans,“ sagði þannig til dæmis í yfirlýsingu kvennalandsliðs Íslands í handbolta eftir leik við landslið Ísraels nýverið en engir áhorfendur voru á leiknum af öryggisástæðum. Mótmælt var fyrir utan Ásvelli í Hafnarfirði þar sem leikurinn fór fram og meðal annars barið harkalega á hurðir hússins.

Kallað var hins vegar eftir því að landsliði Ísraels yrði bannað að keppa á alþjóðlegum mótum í yfirlýsingunni í stað þess að gagnrýna þá sem stóðu að mótmælunum og ógnuðu öryggi íslenzku leikmannanna með framgöngu sinni. Landsliðið kaus þannig að beina spjótum sínum að þeim sem hinum ógnandi mótmælum var fyrst og fremst beint að og taka sér síðan stöðu með þeim sem höfðu ógnað öryggi þess sjálfs. Hlutunum var með öðrum orðum snúið algerlega á haus.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Frá Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. Eigandi: Daderot)