Með kaupum sínum á rússnesku gasi og olíu um langt árabil fjármögnuðu ríki Evrópusambandsins hernaðaruppbyggingu og síðan hernað Rússlands í Úkraínu. Þetta sagði Josep Borrell, þáverandi utanríkisráðherra sambandsins, í ræðu sem hann flutti 9. marz 2022 á þingi þess. Ríki Evrópusambandsins voru þannig áratugum saman langstærsti kaupandi rússneskrar orku og enn er flutt verulegt magn þarlends gass til sambandsins, bæði beint og óbeint.
„Þegar Rússar réðust inn á Krímskaga töluðum við um að við þyrftum að draga úr því hversu háð við værum rússnesku gasi,“ sagði Borrell enn fremur í ræðunni. Þess í stað hefðu ríki Evrópusambandsins þvert á móti keypt enn meiri orku frá Rússlandi. Í annarri ræðu í byrjun marz 2022 sagði hann að rætt hefði verið um það að draga þyrfti úr í þessum efnum í að minnsta kosti tuttugu ár en þvert á móti hefði sambandið sífellt orðið háðara rússnesku gasi.
Fyrir utan annað, líkt og til að mynda alvarlega vanrækslu ríkja Evrópusambandsins um langt árabil við að tryggja eigin varnir sem taka mun langan tíma að bæta fyrir verði sú raunun á annað borð, er þannig í bezta falli vandséð hvaða vörn sambandið og ríki þess, sem ljóst er að kunnu engan veginn fótum sínum forráð þegar kom að samskiptum við Rússland og telfdu orkuöryggi sínu í algera tvísýnu, ættu að geta veitt Íslandi gegn rússneskum stjórnvöldum.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Rússneskur heiðursvörður í Moskvu, höfuðborg Rússlands. Eigandi: Bandaríski flugherinn)