Hvers vegna jókst fylgið?

Fagna ber auknu fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík samkvæmt niðurstöðum síðustu skoðanakannana. Hins vegar er auðvitað ljóst að betur má ef duga skal. Fylgið nú mælist á svipuðum slóðum og í kosningunum 2018 þegar það var 31,8% sem reyndist flokknum þó sem kunnugt er ekki nóg til þess að komast í meirihluta í borgarstjórn.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík var 31,2% í skoðanakönnun Gallups sem gerð var í janúar fyrir Viðskiptablaðið. Fram kom í umfjöllun blaðsins að fylgi flokksins hefði aukizt um 10,1% frá fyrri könnun fyrirtækisins fyrir áramót. Í könnun Gallups fyrir Viðskiptablaðið í marz var fylgið 33,9%. Þá var fylgi hans 31,9% samkvæmt könnun Maskínu í apríl.

Fram að könnun Gallups í janúar hafði Sjálfstæðisflokkurinn í höfuðborginni verið að mælast með um fjórðungsfylgi eða á svipuðum slóðum og í síðustu borgarstjórnarkosningum 2022 undir forystu oddvita hans, Hildar Björnsdóttur, þegar það var 24,5% sem voru verstu kosningaúrslit borgarstjórnarflokksins eftir fall viðskiptabankanna 2008.

Vangaveltur hafa verið uppi um það hvers vegna fylgi Sjálfstæðisflokksins tók skyndilega stökk upp á við í skoðanakönnun Gallups í janúar. Forystumenn borgarstjórnarflokksins hafa eðlilega viljað meina að ástæðan væri einkum frammistaða þeirra en hins vegar verður ekki séð að þeir hafi haldið mikið öðruvísi á málum eftir áramótin en fyrir þau.

Hins vegar gerðist nokkuð skömmu áður en könnun Gallups var gerð dagana 13. til 31. janúar. Bjarni Benediktsson, þáverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, tilkynnti þannig 6. janúar að hann ætlaði að láta af formennsku á næsta landsfundi flokksins og ekki taka sæti á Alþingi þegar þingið kæmi saman að loknu jólaleyfi. Nýr formaður yrði því kosinn.

Könnun Gallups í marz, sem sýndi frekari fylgisaukningu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, var gerð 1. til 30. þess mánaðar en landsfundur flokksins, þar sem Guðrún Hafsteinsdóttir var kjörin formaður, fór fram dagana 28. febrúar til 2. marz. Efalítið hefur ákvörðun Bjarna og kjör Guðrúnar þannig haft jákvæð áhrif á þróun fylgisins í Reykjavík.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)