Mikið var reynt af hálfu Evrópusambandsins til þess að fá Bretland til þess að vera áfram aðili að EES-samningnum eða semja um hliðstæðan samning eftir að Bretland hefði yfirgefið sambandið en öll ríki sambandsins eru aðilar að honum ásamt EFTA-ríkjunum Íslandi, Noregi og Liechtenstein. Hins vegar var því ítrekað hafnað bæði af brezkum stjórnvöldum og neðri deild brezka þingsins. Hið sama á við um Sviss sem hefur ítrekað afþakkað EES-samninginn.
Til að mynda höfnuðu þannig svissneskir kjósendur aðild að EES-samningnum fyrir rúmum 30 árum síðan. Þess í stað sömdu svissnesk stjórnvöld um tvíhliða samninga við Evrópusambandið með fríverzlunarsamning Sviss við forvera sambandsins frá 1972 sem grunn. Hliðstæður fríverzlunarsamningur Íslands er í fullu gildi og að mörgu leyti mjög hagstæður. Kveður hann þannig til dæmis á um fullt tollfrelsi með iðnaðarvörur og ýmsar mikilvægar sjávarafurðir.
Með hliðstæðum hætti ákváðu stjórnvöld í Bretlandi að semja við Evópusambandið um víðtækan fríverzlunarsamning sem meðal annars felur í sér fullt tollfrelsi með sjávarafurðir líkt og bæði Japan og Kanada hafa samið um við sambandið. Við Íslendingar höfum hins vegar aldrei notið fulls tollfrelsis með sjávarafurðir í gegnum EES-samninginn þó ein helzta ástæða þess að við gerðumst aðilar að honum hafi verið sú að njóta sérstakra tollakjara í þeim efnum.
Fram kom meðal annars í máli Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands þegar samið var um fríverzlunarsamning landsins við Evrópusambandið, að fullveldið skipti meira máli en tollalaus viðskipti og að fullvalda ríki gæti ekki verið aðili að samningi eins og EES-samningnum. Þá má geta þess að samningur Breta við sambandið er hliðstæður við fríverzlunarsamning Íslands við Bretland sem kom í stað EES-samingsins án þess að nokkuð færi á hliðina í þeim efnum.
Mjög langur vegur er þannig frá því að ríki standi í biðröð eftir því að gerast aðilar að EES-samningnum eða semja um hliðstæða samninga við Evrópusambandið. Þvert á móti kjósa ríki heimsins víðtæka fríverzlunarsamninga þegar þau semja sín á milli og ekki sízt stærstu efnahagsveldin með sína miklu viðskiptahagsmuni. Þar með talið sambandið. Slíkir samningar voru ekki komnir til sögunnar þegar samið var um EES-samninginn fyrir rúmum þremur áratugum.
Víðtækir fríverzlunarsamningar taka mið af öllum þeim þáttum sem máli skipta í milliríkjaviðskiptum í dag en kveða hins vegar ekki á um einhliða framsal valds ríkja til viðsemjenda þeirra og einhliða upptöku íþyngjandi regluverks frá þeim líkt og EES-samningurinn sem er einfaldlega barn síns tíma. Þvert á móti sitja ríki þar við sama borð í þeim efnum með gagnkvæmar skuldbindingar. Tímabært er að færa viðskipti okkar við Evrópusambandið til nútímans.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Tower Bridge í London, höfuðborg Bretlands. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
