„Ég trúi á samstöðu, rétt eins og verkalýðshreyfingin. Og ég tel að því séu takmörk sett hvað lítið samfélag eins og okkar gæti þolað af klofningi eða ójöfnuði. Þess vegna vil ég beita mér fyrir því með minni forystu að færa fólkið í landinu nær hvort öðru en ekki fjær. Til dæmis með því að leggja ekki of umfangsmiklar breytingar á landann í einu vetfangi – og með því að keyra ekki á klofningsmálum heldur leitast eftir því að ná árangri á þeim sviðum sem sameina þorra þjóðar.“
Meðal annars með þessum hætti komst Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, að orði í ræðu sem hún flutti á viðburði á vegum Samfylkingarfélagsins í Reykjavík í tilefni af baráttudegi verkalýðsins. Hins vegar hefur ríkisstjórn hennar engu að síður kosið að setja á dagskrá mál sem eru til þess fallin að klúfa þjóðina í tvær fylkingar. Þar ber hæst ákvörðun stjórnarinnar að setja inngöngu í Evrópusambandið á dagskrá stjórnmálanna.
Fyrir þingkosningarnar í lok nóvember sagði Kristrún meðal annars í samtölum við kjósendur að Samfylkingin myndi ekki setja inngöngu í Evrópusambandið á dagskrá á þessu kjörtímabili heldur yrði áherzlan á efnahagsmálin. Talaði hún fyrir kosningarnar á hliðstæðum nótum í þessum efnum og Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, systurflokks Samfylkingarinnar, gerði í setningarræðu sinni á landsfundi flokksins á dögunum.
„Við þurfum nú að beina orkunni að því að standa vörð um norska hagsmuni. Ekki að eyða henni í langt, krefjandi umsóknarferli sem hætta er á að sundri okkur,“ sagði Støre í ræðunni. Þjóðaratkvæði um Evrópusambandið væri ekki bezt fyrir Noreg en fundurinn hafnaði tillögum um að flokkurinn beitti sér fyrir inngöngu í sambandið og þjóðaratkvæði í þeim efnum. „Við erfiðar aðstæður vil ég frekar halda Noregi sameinuðum en setja af stað ný átök með eða á móti.“
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)