Fer í leyfi frá stjórnmálunum

„Ég hef tekið ákvörðun um að hefja nám í Columbia-háskóla í New York síðsumars eftir að ég fékk boð í vikunni um skólavist. Því fylgja flutningar til Bandaríkjanna og leyfi frá þingstörfum í 9 mánuði frá og með haustinu. Þar mun ég leggja stund á MPA-nám.“ Þetta segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag en sem kunnugt er bauð hún sig fram til formanns á landsfundi flokksins í vetur en beið ósigur fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur sem fer nú fyrir honum. Vangaveltur hafa síðan verið uppi um það hvort hún héldi áfram í stjórnmálunum.

Tilkynning Áslaugar kemur þannig ekki endilega mjög á óvart en ég skrifaði til að mynda pistil á Stjórnmálin.is, skömmu eftir landsfundinn sem fram fór um mánaðarmótin febrúar-marz, um það hvað tæki við hjá Áslaugu eftir ósigurinn. Hvort hún gæti hugsað sér að vera óbreyttur þingmaður í stjórnarandstöðu næstu fjögur árin, sæti ríkisstjórnin allt kjörtímabilið, eða hvort hún kynni að leita á önnur mið. Vera í stjórnarandstöðu hefði eðlilega orðið þolanlegri sem flokksformaður. Stjórnarandstaða er einu sinni ný reynsla fyrir Áslaugu sem verið hefur ráðherra stærstan hluta þingferils síns.

Fjallaði ég einnig um ummæli Áslaugar við ýmsa vini hennar og kunningja síðasta haust þess efnis að hún velti því alvarlega fyrir sér að hætta mögulega í stjórnmálum meðal annars í ljósi sérlega slaks fylgis Sjálfstæðisflokksins í skoðanakönnunum á þeim tíma. Þá hefði hún sagt við ýmsa eftir að hún gaf kost á sér í formannsstól flokksins í byrjun ársins að hún kynni að yfirgefa stjórnmálin næði hún ekki kjöri. Áslaug hefur að sögn ekki endanlega yfirgefið stjórnmálin. Hvort það breytist kemur í ljós. Vert er annars að óska henni góðs gengis. Hún er sannarlega fengur fyrir Columbia-háskólann.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)