Með ákvörðun sinni um að fara í háskólanám til Bandaríkjanna og taka sér níu mánaða leyfi frá þingstörfum af þeim sökum er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, að taka ákveðna pólitíska áhættu. Einkum í ljósi þess að ekki er langt síðan hún var endurkjörin á þing eða minna en hálft ár. Leyfið hefst síðsumars og stendur því fram á næsta vor. Með öðrum orðum heilan þingvetur af í mesta lagi fjórum að því gefnu að ríkisstjórnin muni sitja í fjögur ár.
Fram kom í yfirlýsingu Áslaugar að hún væri hvergi nærri hætt í stjórnmálum og enn fremur að stórt verkefni væri framundan. „Sveitarstjórnarkosningarnar og að ná borginni að nýju. Þar þarf okkar fólk um allt land á okkar einarða stuðningi að halda.“ Hins vegar verður Áslaug enn í námi í kosningabaráttunni eftir ár en gert er ráð fyrir að kosningarnar fari fram 16. maí. Vonandi verður hún þó í aðstöðu til þess að veita frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins stuðning að einhverju marki.
Hitt er annað mál, eins og áður er imprað á, að alls óvíst er hversu langt núverandi kjörtímabil verður. Þess vegna gæti komið til þess að kosið verði aftur til dæmis á næsta ári. Skiljanlegt er auðvitað að Áslaug taki boði um skólavist í virtum bandarískum háskóla sem hún hefur þó væntanlega sótt um. Hins vegar er það meira í ætt við það að grípa tækifærið þegar tímabundið annað starf býðst en til dæmis að fara í fæðingarorlof. Sem fyrr segir felst í því ákveðin pólitísk áhætta.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ræðir við bandarískan hermann. Eigandi: Bandariski sjóherinn)