Til stendur að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka á næstu vikum. Þetta hafði Ríkisútvarpið í gær eftir Daða Má Kristóferssyni, fjármálaráðherra Viðreisnar. Kveðið er á um söluna í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar en fyrir þingkosningarnar í nóvember hafði Flokkur fólksins hafnað því alfarið að hlutur ríkisins í bankanum yrði seldur og beitt sé af hörku gegn því. Einkum á þeim forsendum að þar með væri seld gullgæs sem skilaði meira í arð en hægt væri að fá með sölu hennar.
„Flokkur fólksins er alfarið á móti því að losa sig við eigur sínar, í þessu tilviki gullgæsina sem eftir lifir hjá Íslandsbanka,“ sagði Inga Sæland, félagsmálaráðherra og formaður flokksins, til að mynda í ræðu á Alþingi fyrir rúmu ári síðan í umræðum um frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar, þáverandi fjármálaráðherra, til laga um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka sem núverandi ríkisstjórn hyggst beita til þess að selja eignarhlutinn með blessun Flokks fólksins.
Frekar fátt er orðið eftir af helztu stefnumálum Flokks fólksins. Flokkurinn hefur áður gefið stærsta stefnumál sitt upp á bátinn um lágmarksframfærslu upp á 450 þúsund krónur á mánuði skattlaust sem Inga sagði fyrir kosningar skilyrði fyrir þátttöku í ríkisstjórn. Hið sama á við um andstöðu flokksins við skref í átt að inngöngu í Evrópusambandið sem og andstöðu hans við bókun 35 við EES-samninginn. Hvað breyttist? Jú, Inga og Flokkur fólksins komust í ríkisstjórn.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Íslenzkir peningar. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)