Meirihluti Norðmanna er sem fyrr andvígur inngöngu í Evrópusambandið samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem fyrirtækið InFact framkvæmdi fyrir norska dagblaðið Nettavisen. Meirihluti hefur verið á móti því að Noregur gengi í sambandið í öllum könnunum sem birtar hafa verið frá því í byrjun árs 2005 eða í yfir 19 ár.
Fram kemur í frétt Nettavisen að 55,7% Norðmanna vilji ekki að Noregur verði hluti af Evrópusambandinu á meðan 28,3% séu því hlynnt. Sömuleiðis er meirihluti allra aldursflokka andvígur inngöngu í sambandið og meirihluti í öllum landshlutum að undanskilinni höfuðborginni Osló þar sem stuðningsmenn inngöngu hafa nauman meirihluta.
Haft er eftir Heidi Nordby Lunde, leiðtoga norsku Evrópuhreyfingarinnar, að hún teldi ekki að Norðmenn myndu kjósa um inngöngu í Evrópusambandið á næsta kjörtímabili aðspurð hvort hún héldi að til þess kæmi í fyrirsjáanlegri framtíð. Hins vegar gæti það mögulega orðið í kringum 2030. Þingkosningar fara fram í Noregi næsta haust.
Hér á landi hafa ýmsir stuðningsmenn inngöngu Íslands í Evrópusambandið fullyrt að sótt verði um inngöngu í sambandið í Noregi eftir næstu þingkosningar án þess þó að færa haldbær rök fyrir þeirri fullyrðingu. Væntanlega vita þeir þá eitthvað meira um það en leiðtogi hreyfingar stuðningsmanna inngöngu í Evrópusambandið í Noregi.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Norskir fánar fyrir utan konungshöllina í Ósló, höfuðborg Noregs. Eigandi: Maxxii)
