Fleiri sem fyrr andvígir í Noregi

Meirihluti Norðmanna er andvígur inngöngu í Evrópusambandið samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar eða 55% á meðan rúmur þriðjungur er henni hlynntur. Forskot þeirra sem andvígir eru því að gengið verði í sambandið er því yfir 20 prósentustig samkvæmt könnuninni sem fyrirtækið Opinion gerði fyrir norsku fréttavefina Altinget og ABC Nyheter. Fleiri hafa verið andvígir inngöngu í öllum könnunum sem birtar hafa verið í Noregi undanfarin 20 ár.

Haft er eftir Martin Stubban, sérfræðingi hjá Opinion, á Altinget að stuðningur við inngöngu í Evrópusambandið hafi dregizt verulega saman frá fyrri skoðanakönnun fyrirtækisins í marz en þá sögðust 40% styðja það að Noregur gengi í sambandið og 49% vera því andvíg. Stubban segir að mun meiri óvissa hafi ríkt í heimsmálunum þegar fyrri könnunin hafi verið gerð og í aðdraganda hennar en nú væri ástandið hins vegar orðið rólegra sem birtist í nýju könnuninni.

Forystumenn Hægriflokksins og Verkamannaflokksins í Noregi, Erna Solberg og Jonas Gahr Støre, hafa lýst þeirri skoðun sinni að innganga í Evrópusambandið verði ekki á dagskrá eftir þingkosningarnar þar í landi næsta haust. Hið sama hefur leiðtogi samtaka norskra Evrópusambandssinna, Heidi Nordby Lunde, sagt. Hérlendir Evrópusambandssinnar hafa hins vegar haldið öðru fram og hafa sjálfsagt meira vit á því en fyrrnefndir forystumenn í norskum stjórnmálum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Norskir fánar fyrir utan konungshöllina í Ósló, höfuðborg Noregs. Eigandi: Maxxii)