Verður Poilievre næsti forsætisráðherra Kanada?

Kosið verður í síðasta lagi til kanadíska þingsins 20. október á næsta ári. Hins vegar þykja vaxandi líkur á því að kosið verði mun fyrr. Jafnvel innan ekki skamms tíma. Frjálslyndi flokkurinn, flokkur Justins Trudeau forsætisráðherra, mælist með um 21% fylgi í síðustu skoðanakönnunum en hlaut tæp 34% í síðustu þingkosningum 2021. Hins vegar mælist Íhaldsflokkurinn undir forystu Pierre Poilievre með um 44% og hefur farið jafnt og þétt vaxandi á undanförnum misserum.

Trudeau hefur verið forsætisráðherra frá árinu 2015 og leiðtogi Frjálslynda flokksins frá 2013. Fylgi flokksins hefur dregizt saman samhliða fylgisaukningu Íhaldsflokksins. Poilievre er yfirlýstur frjálshyggjumaður og höfðar sem slíkur til margra kjósenda Frjálslynda flokksins. Hann hefur lagt áherzlu á fjögur meginatriði í aðdraganda næstu kosninga; skattar verði lækkaðir, fleiri heimili verði byggð, ríkisfjármálunum verði komið í lag og aukna baráttu gegn glæpum.

Poilievre hefur verið leiðtogi Íhaldsflokksins frá árinu 2022 og tók sæti í neðri deild þings Kanada árið 2004, þá aðeins 25 ára gamall. Hann er fæddur 1979 í borginni Calgary í Alberta-fylki. Poilievre tók fyrst sæti í ríkisstjórn 2013 sem ráðherra lýðræðisumbóta og tók síðan við sem ráðherra atvinnumála og félagslegrar þróunar tveimur árum síðar. Eftir að Íhaldsflokkurinn lenti í stjórnarandstöðu eftir kosningarnar 2015 varð hann skuggafjármálaráðherra.


Fram kom meðal annars í ræðu sem Poilievre flutti á blaðamannafundi á mánudaginn að mikilvægt væri að boðað yrði til kosninga í Kanada áður en Donald Trump tæki formlega við embætti forseta Bandaríkjanna í ljósi yfirlýsinga hans um að hann hyggðist meðal annars leggja háa tolla á kanadískan innflutning til landsins. Kanada þyrfti ríkisstjórn með sterkt umboð frá þarlendum kjósendum meðal annars til þess að standa í lappirnar gagnvart hótunum Trumps.

Vaxandi þrýstingur hefur verið á Trudeau að segja af sér og undir það síðasta ekki sízt úr röðum hans eigin flokksmanna. Hvert áfallið hefur dunið yfir á fætur öðru. Síðasta haust hætti til að mynda Nýi lýðræðisflokkurinn stuðningi við minnihlutastjórn Trudeaus og nú síðast sagði Chrystia Freeland af sér sem fjármálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra eftir deilur við hann um það með hvaða hætti staðið hefði verið að málum varðandi fjárlagafrumvarp ríkistjórnarinnar.

Fyrir vikið telja margir stjórnmálaskýrendur að stutt kunni að vera í það að Trudeau tilkynni afsögn sína. Fátt bendi til annars en að staða hans muni halda áfram að versna og ekki sízt innan Frjálslynda flokksins. Þolinmæðin gagnvart honum fari hratt þverrandi og vandséð hvað ætti að breyta því. Hugmyndir um að skipta mögulega um leiðtoga án þess að boða til kosninga í ljósi dræms fylgis flokksins hafa verið harðlega gagnrýndar og sagðar í hæsta máta ólýðræðislegar.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Pierre Poilievre, leiðtogi Íhaldsflokks Kanada. Eigandi: Skjáskot)