„Flestir blaðamenn eru farnir að ritskoða eigin skrif til þess að forðast að lenda upp á kant við öryggissveitirnar,“ segir Tahseen al-Astal, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka palestínskra blaðamanna (PJS), í samtali við samtökin Committee to Protect Journalists (CPI), í frétt á vefsíðu þeirra 15. maí síðastliðinn og vísaði þar til öryggissveita hryðjuverkasamtakanna Hamas sem stýrt hafa Gaza með harðri hendi undanfarna tæpa tvo áratugi. CPI eru sjálfstæð samtök sem berjast fyrir rétti blaðamanna til þess að sinna störfum sínum með öruggum hætti og án þess að þurfa að óttast hefndaraðgerðir.
Fram kemur í frétt CPI að öryggissveitir Hamas hafi markvisst komið í veg fyrir palestínskir blaðamenn fjölluðu um mótmæli almennings gegn hryðjuverkasamtökunum á Gaza sem og ofbeldi sveitanna í garð mótmælenda sem væru sakaðir af þeim um valdarán og að ganga erinda Ísraels. Mörg mótmæli Palestínumanna á Gaza hafa átt sér stað að undanförnu gegn Hamas. Þar á meðal mótmæli palestínskra kvenna 27. apríl í borginni Beit Lahia í norðurhluta svæðisins en slík mótmæli hafa að undanförnu gjarnan átt sér stað í norðurhlutanum þar eð samtökin ráða ekki lengur lögum og lofum þar.
Haft er eftir palestínska fréttamanninum Tawfiq Abu Jarad, sem starfar fyrir einkareknu útvarpsstöðina Sawt al-Hurriya, að hann hefði hætt að fjalla um mótmæli gegn Hamas eftir að grímuklæddir liðsmenn samtakanna börðu hann og yfirheyrðu síðan klukkustundum saman í borginni Rafah í suðurhluta Gaza í nóvember 2023. Honum hafi ekki verið sleppt fyrr en hann hefði lofað að fjalla ekki oftar um mótmæli gegn þeim. Þá hefði hann fengið símtal frá fulltrúa Hamas vegna kvennamótmælanna sem hafi varað hann við því að ef konan hans tæki þátt í þeim yrði hann gerður ábyrgur fyrir því.
„Hamas og hópar á vegum samtakanna hafa brotið gróflega á blaðamönnum,“ er haft eftir Nasser Abu Bakr, framkvæmdastjóra PJS. „Brotin eru allt frá stefnum, yfirheyrslum, símtölum, hótunum, stundum barsmíðum og handtökum, til áreitni, birtingarbanns, afskipta af efni og eftirlits.“ Fram kemur að mjög lítið hafi verið fjallað um brot Hamas gegn fjölmiðlafrelsi. PJS skrái hjá sér árásir Hamas á fjölmiðlafólk en upplýsingarnar væru ekki birtar af ótta við hefndaraðgerðir. Þá heyrðu samtökin einnig um árásir frá þriðja aðila þar sem blaðamenn væru of hræddir til þess að tilkynna þær.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Vígamenn Hamas. Eigandi: Fars Media Corporation – Attribution 4.0 International)
