Með einungis fjórða mesta fylgið

Miðað við niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar fyrirtækisins YouGov nýtur Íhaldsflokkurinn í Bretlandi 16% fylgis þar í land og er einungis í fjórða sæti í þeim efnum. Umbótaflokkurinn mælist með mest fylgi, líkt og í öðrum könnunum undanfarna mánuði, eða 29%, Verkamannaflokkurinn kemur næstur með 22% og Frjálslyndir demókratar þeir þriðju með 17%. Þetta er í fyrsta sinn sem Íhaldsflokkurinn er aðeins með fjórða mesta fylgið í könnunum fyrirtækisins.

Fram kemur á fréttavef dagblaðsins Guardian að yrði þetta niðurstaða þingkosninga myndi Umbótaflokkurinn fá hreinan meirihluta í neðri deild brezka þingsins eða 346 þingmenn af 650. Íhaldsflokkurinn myndi hins vegar aðeins fá 17 þingmenn en hlaut 121 í kosningunum sem fram fóru á síðasta ári sem þó fól í sér algert hrun í fylgi flokksins. Í kosningunum þar á undan, árið 2019, fékk hann 365 þingsæti. Ljóst þykir að fylgið hafi einkum farið til Umbótaflokksins.

Hafnar eru umræður innan Íhaldsflokksins um það að skipta þurfi um leiðtoga flokksins. Ekki sízt eftir útreið Íhaldsflokksins í kosningum til sveitarstjórna nýverið þar sem flokkurinn tapaði 670 sætum í sveitarstjórnum á sama tíma og Umbótaflokkurinn tryggði sér 677 sæti. Núverandi leiðtogi Íhaldsflokksins, Kemi Bandenoch, tók einungis við í nóvember síðastliðnum. Næstu kosningar í Bretlandi fara fram í síðasta lagi sumarið 2029 en gætu hæglega farið fram fyrr.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Frá London, höfuðborg Bretlands. Eigandi: Yiannis Theologos Michellis)