Vandræðagangur Flokks fólksins allt frá því að ríkisstjórnin var mynduð í desember síðastliðnum hefur reynzt ríkisstjórninni erfiður en það fylgi sem flokkurinn hefur tapað af þeim sökum virðist hins vegar hafa að mestu leyti færzt yfir að hina stjórnarflokkana. Þá fyrst og fremst Samfylkinguna. Líklegasta skýringin á því er sú að einkum sé um að ræða heimilislaust fylgi sem áður kaus Vinstri græna en getur sem fyrr ekki hugsað sér að styðja þann flokk lengur.
Flokkarnir þrír sem mynda núverandi ríkisstjórn, Samfylkingin, Viðreisn og Flokkur fólksins, hafa þannig samanlagt hliðstætt fylgi í könnunum um þessar mundir og þeir fengu í þingkosningunum í lok nóvember en það hefur aðallega færzt á milli þeirra. Fylgi Flokks fólksins hefur þannig dregizt saman um hátt í helming frá kosningunum á meðan fylgi Samfylkingarinnar hefur aukizt um tæplega þriðjung af kjörfylgi flokksins og Viðreisn tapað aðeins af sínu kjörfylgi.
Fylgisaukning Samfylkingarinnar í könnunum sem hófst fyrir um tveimur og hálfu ári var fyrst og fremst á kostnað Vinstri grænna sem töpuðu um tíu prósentustigum í kosningunum í nóvember miðað við kosningarnar 2021. Samhliða því sem þeir töpuðu meira fylgi jókst fylgi Samfylkingarinnar. Fyrir síðustu kosningar dróst hins vegar fylgi hennar saman með auknu fylgi Flokks fólksins. Nú hefur það fylgi að öllum líkindum skilað sér aftur til Samfylkingarinnar.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
