Meðal þess sem fram kom í máli Úlfars Lúðvíkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, í Spursmálum á mbl.is í gær var það að með tilliti til öryggismála hefði Ísland aldrei átt að gerast aðili að Schengen-svæðinu. „Það voru mistök. Ef maður horfir til öryggissjónarmiða þá átti Ísland aldrei að fara inn í þetta samstarf,“ sagði hann. Vegna aðildarinnar að Schengen væri í raun sáralítið eftirlit með því hverjir kæmu inn í landið frá öðrum aðildarríkjum svæðisins.
Fyrr í þessum mánuði var Úlfar boðaður með nær engum fyrirvara á fund Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra og þingmanns Viðreisnar, og Hauks Guðmundssonar, ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins, þar sem honum var tilkynnt að hann yrði ekki endurskipaður í embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum heldur yrði embættið auglýst í haust. Honum var þess í stað boðið embætti lögreglustjórans á Austurlandi án þess að þurfa að sækja um það.
Fram kom í máli Úlfars í Spursmálum að augljóst hefði verið að hans mati að ekki væri áhugi á því að hann yrði áfram í embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Annars hefði honum til dæmis ekki verið boðið annað embætti. Skilaboðin hefðu verið skýr. Á mannamáli hefði hann einfaldlega verið rekinn. Fyrir vikið hefði hann einfaldlega óskað eftir því að hætta strax og að við hann yrði gerður starfslokasamningur enda ljóst að starfskrafta hans væri ekki lengur óskað.
Meginforsenda þess að Ísland gerðist aðili að Schengen-svæðinu fyrir um aldarfjórðungi síðan, og felldi þar með niður hefðbundið landamæraeftirlit gagnvart öðrum aðildarríkjum þess, var sú að á móti yrði landamæraöryggi á ytri mörkum svæðisins tryggt. Hins vegar hefur sú aldrei verið raunin. Þetta á einkum við um suður- og austurhluta svæðisins. Þegar einu sinni er komið inn á það, löglega eða ólöglega, er hægt að ferðast skilríkjalaust innan þess.
„Saga þessara landamæra er í raun og veru bara sorgleg,“ sagði Úlfar og vísaði til innri landamæranna að öðrum aðildarríkjum Schengen-svæðisins. Þar hefði í raun ekki verið neitt landamæraeftirlit þegar hann tók við sem lögreglustjóri á Suðurnesjum. Þar væri ekkert kerfisbundið eftirlit. Hann hefði reynt að bæta aðstæður eins og kostur hefði verið. „Innri landamærin eru okkar vandamál, ytri landamærin eru nokkuð örugg.“ Þar þyrfti enda að framvísa vegabréfum.
„Ég hef nú ákveðinn samanburð, ég bjó nú í Bretlandi í eitt ár og á þar góða vini sem ég hef getað spjallað við og menn hrista hausinn alveg endalaust og þeir botna ekkert í því hvers vegna við fórum inn í fyrsta lagi,“ sagði Úlfar en Bretar kusu að standa utan Schengen-svæðisins á sínum tíma ásamt Írlandi enda löndin tvö líkt og Ísland eyja með landamæri frá náttúrunnar hendi. Því öryggi sem felst í náttúrulegum landamærum landsins var að mestu fórnað með Schengen.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Frá Keflavíkurflugvelli. Eigandi: Jeff Hitchcock – Creative Commons Attribution 2.0 Generic)
