Dræm ánægja með Davíð 1991?

Við lok árs 1991 birti DV niðurstöður skoðanakönnunar um vinsældir helztu stjórnmálaforingja landsins. Þar kom fram að 59,6% þeirra sem afstöðu hefðu tekið væru óánægðir með Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra sem tekið hafði við formennsku í Sjálfstæðisflokknum í marz sama ár. Rúmur fjórðungur, eða 25,8%, var á hinn bóginn ánægður með hann. Fylgi flokksins mældist hins vegar talsvert meira en sem því nam. Má ætla út frá því að um 60% stuðningsmanna hans hafi verið ánægð með formanninn. Davíð átti þó eftir að verða einhver farsælasti stjórnmálamaður landsins.

Mbl.is birti í gær niðurstöður skoðanakönnunar sem Maskína gerði fyrir hlaðvarpið Komið gott! þar sem spurt var um afstöðu fólks til nýrrar forystu Sjálfstæðisflokksins en sem kunnugt er var Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður flokksins á landsfundi hans fyrr á árinu, Jens Garðar Helgason varaformaður og Vilhjálmur Árnason endurkjörinn ritari. Rúmur helmingur, eða 53%, töldu forystuna hafa staðið sig illa en um 19% vel. Ekki fjarri tölunum í könnun DV í desember 1991. Þá sögðust 59% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins telja forystuna hafa staðið sig vel, 28% í meðallagi og 13% illa.

Fyrirsögn mbl.is var á þá leið að dræm ánægja væri með forystu Guðrúnar í Sjálfstæðisflokknum. Væntanlega hefur þá að sama skapi verið dræm ánægja með forystu Davíðs í lok árs 1991. Hitt er vitanlega rétt ályktað í fréttinni að pólitískir andstæðingar flokksins eru eðli málsins samkvæmt ólíklegir til þess að lýsa yfir ánægju með forystu hans. Óánægja pólitískra andstæðinga Sjálfstæðisflokksins með forystuna getur þannig hæglega verið reist á hugmyndafræðilegum grunni og þar af leiðandi verið til marks um það að hún hafi þvert á móti verið að gera góða hluti þegar horft er til stefnu flokksins.

Hvað sem því annars líður eru niðurstöður könnunar Maskínu alls ekki afleitar fyrir nýja forystu Sjálfstæðisflokksins. Til að mynda geta það ekki talizt slæmar niðurstöður að mikill meirihluti stuðningsmanna flokksins telji forystuna hafa staðið sig vel, 28% í meðallagi og einungis 19% illa sem fyrr segir. Ekki sízt í ljósi þess hversu skammt er liðið síðan tekizt var á um það hverjir skipuðu hana á landsfundinum af um það bil jafnstórum fylkingum. Eins og raunar er komið inn á í fréttinni. Hæglega má þannig túlka þær á þá leið að ágætlega gangi hjá forystunni að fylkja stuðningsmönnum flokksins að baki sér.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)