Tók Davíð meira en tvö ár

Formannskjöri á landsfundi Sjálfstæðisflokknum í marz 1991 lauk með sigri Davíðs Oddssonar, borgarstjóra Reykjavíkur, sem boðið hafði sig fram gegn Þorsteini Pálssyni, sitjandi formanni flokksins. Tvær fylkingar tókust á og fór svo að lokum að Davíð hlaut 52,8% atkvæða en Þorsteinn 46,9%. Með framboði sínu fór Davíð gegn þeim sem um árabil höfðu haft töglin og haldirnar innan Sjálfstæðisflokksins. Mikil reiði var í röðum stuðningsmanna Þorsteins í garð Davíðs sem höfðu til dæmis áfram sterka stöðu í þingflokknum. Tók það Davíð næstu rúm tvö árin að styrkja stöðu sína innan flokksins.

Haft er stundum á orði að sagan eigi það til að endurtaka sig. Raunin er þó sú að hún gerir það vitanlega ekki en hins vegar hefur mannlegt eðli lengi verið eins og fólk fyrir vikið haft ríka tilhneigingu til þess að bregðast með sama hætti við hliðstæðum aðstæðum. Formannskjörið á landsfundi Sjálfstæðisflokksins fyrr á þessu ári, þar sem Guðrún Hafsteinsdóttir sigraði Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, var þannig á ýmsan hátt óneitanlega keimlíkt formannskjörinu 1991. Þó Guðrún hafi ekki farið gegn sitjandi formanni var um að ræða stjórnmálamann með miklu lengri reynslu af landsmálunum.

Fyrir liggur að Áslaug hafði unnið lengi að formannsframboði sínu og stuðningsmenn hennar voru einkum þeir sem stutt höfðu fráfarandi formann Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktsson. Guðrún var þannig í raun að bjóða sig fram í óþökk margra þeirra sem verið höfðu við stjórnvölinn árum saman og eru enn í lykilhlutverkum innan flokksins. Þá hafði Guðrún að sama skapi ekki frekar en Davíð langa reynslu í landsmálunum þegar hún var kjörin formaður en hins vegar mikla stjórnunarreynslu á öðrum og ekki síðri vettvangi, atvinnulífinu. Í tilfelli Davíðs sem fyrr segir í borgarmálunum.

Með þessum skrifum er annars ekki ætlunin að bera þau Davíð og Guðrúnu saman að öðru leyti en því að þau urðu formenn Sjálfstæðisflokksins við að ýmsu leyti keimlíkar aðstæður sem fyrr segir. Davíð er einhver öflugasti stjórnmálamaður sem Ísland hefur alið. Hins vegar tók það jafnvel hann verulegan tíma að fóta sig í hlutverki formanns flokksins og það í ríkisstjórn þegar flokksmenn hafa ríkari tilhneigingu til þess að fylkja sér um formanninn en í stjórnarandstöðu. Ég tel að Guðrún hafi að sama skapi alla burði til þess að verða farsæll formaður Sjálfstæðisflokksins þegar fram í sækir.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)