Hótanir Donalds Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, um að hækka verulega tolla á innfluttar vörur til landsins hafa fyrst og fremst beinzt að mörgum af stærstu viðskiptaríkjum þess. Einkum Kanada, Mexíkó og ríkjum Evrópusambandsins. Engar fréttir hafa hins vegar borizt af slíkum hótunum í garð Íslands en komi til þeirra verður það að öllum líkindum afleiðing þess að bandarísk stjórnvöld spyrði okkur Íslendinga við sambandið vegna aðildar okkar að EES-samningnum.
Til að mynda lýsti Trump því yfir fyrir jól að tollar á vörur frá Evrópusambandinu, einkum evrusvæðinu, yrðu hækkaðir nema ríki þess keyptu meira af bandarískri olíu og gasi svo viðskiptajöfnuðurinn þar á milli yrði Bandaríkjamönnum í vil. Hafa ríki sambandsins brugðist við með því að reyna að auka innflutning á bandarískum vörum. Hvað Ísland varðar hefur verðmæti innflutnings frá Bandaríkjunum verið meira en útflutnings þangað á liðnum árum samkvæmt Hagstofunni.
Mun meiri líkur eru með öðrum orðum á því að við Íslendingar yrðum fyrir barðinu á tollum af hálfu Bandaríkjanna eftir að Trump tekur við embætti ef við værum innan Evrópusambandsins en utan þess. Fullyrðingar um að innganga í sambandið yrði vörn fyrir Ísland í þessum efnum standast þannig enga skoðun. Miklu nær væri í þeim efnum að endurskoða aðild Íslands að EES-samningnum með það fyrir augum að skipta honum út fyrir nútímalegan víðtækan fríverzlunarsamning.
Vert er að hafa í huga í því sambandi að við Íslendingar höfum þegar látið á það reyna að skipta EES-samningnum út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning. Í tilfelli Bretlands, annars stærsta viðskiptalands okkar á eftir Bandaríkjunum, og ekkert fór á hliðina í þeim efnum. Með öðrum orðum er ekki aðeins um að ræða kenningu. Látið hefur verið á þetta reyna með almennt séð afar góðum árangri. Kæmi til þess mætti að sama skapi semja um fríverzlunarsamning við Bandaríkin.
Flest bendir nefnilega til þess að Ísland geti ekki samið um fríverzlunarsamning við Bandaríkin á meðan landið á aðild að EES-samningnum. Þannig verður að teljast afar ólíklegt að bandarísk stjórnvöld væru reiðubúin að samþykkja að allur þarlendur innflutningur til Íslands yrði að taka mið af regluverki Evrópusambandsins sem taka þarf upp hér á landi vegna samningsins og gjarnan er hannað sem tæknilegar viðskiptahrindanir sem aftur er ekki sízt beint að Bandaríkjunum.
Hins vegar má rifja upp að í fyrri forsetatíð Trumps var greint frá því að hann væri áhugasamur um fríverzlunarsamning við Ísland. Hins vegar eru allar líkur á því sem fyrr segir að aðild okkar að EES-samningnum standi í vegi þess að af slíku geti orðið. Formlega hefur Ísland fullt frelsi til þess að semja um fríverzlun við önnur ríki en í reynd markar samningurinn og regluverk Evrópusambandsins sem taka þarf upp hér á landi í gegnum hann þann ramma sem við getum samið innan.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þinghús Bandaríkjanna í Washington. Eigandi: Fulltrúadeild Bandaríkjaþings)
