Tvær öflugar konur hafa gefið kost á sér sem næsti formaður Sjálfstæðisflokksins, þær Guðrún Hafsteinsdóttir og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, og því ljóst að næsti formaður flokksins mun koma úr röðum kvenna. Fer afskaplega vel á því. Mögulega rímar það illa við hugmyndir einhverra um flokkinn en það er engu að síður staðreynd að hann hefur verið ábyrgur fyrir mörgum af helztu skrefunum sem tekin hafa verið í gegnum tíðina í átt að auknum framgangi kvenna í stjórnmálum á Íslandi og þá ósjaldan verið langt á undan öðrum flokkum. Vitanlega hefur Sjálfstæðisflokkurinn sannarlega getað gert enn betur í því sambandi sem breytir því þó ekki að flokkurinn hefur eftir sem áður verið í fararbroddi í þeim efnum.
Til að mynda var fyrsta konan sem gegndi embætti ráðherra þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Auður Auðuns árið 1970. Auður varð einnig fyrst kvenna borgarstjóri Reykjavíkur 1959 en hafði áður verið forseti borgarstjórnar. Önnur konan sem varð ráðherra var einnig þingmaður flokksins, Ragnhildur Helgadóttir árið 1983. Þá varð Ragnhildur enn fremur fyrsta konan til þess að gegna embætti þingforseta 1961 þegar hún varð forseti neðri deildar Alþingis og síðan aftur 1974-1978. Þá sat fyrsta konan sem tók sæti á Alþingi, Ingibjörg H. Bjarnason, meðal annars á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1929-1930. Önnur konan sem tók sæti á Alþingi, Guðrún Lárusdóttir, sat einnig meðal annars á þingi fyrir hann 1934-1938.
Fyrsta konan sem varð ráðherra fyrir aðra flokka var Jóhanna Sigurðardóttir fyrir Alþýðuflokkinn árið 1987, 17 árum eftir að sú varð raunin í tilfelli Sjálfstæðisflokksins, og fyrsta konan til að verða þingforseti fyrir aðra flokka var Guðrún Helgadóttir 1988 fyrir Alþýðubandalagið, 27 árum á eftir fyrstu sjálfstæðiskonunni. Fyrst til að sitja á Alþingi fyrir aðra flokka og þriðja konan til þess að setjast á þing var Katrín Thoroddsen árið 1946 fyrir Sósíalistaflokkinn. Fjórða til fimmta konan kom frá Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum og sú sjötta frá Sjálfstæðisflokknum sem og sú sjöunda.
Flestar konur hafa setið á Alþingi og gegnt ráðherraembættum fyrir Sjálfstæðisflokkinn af þeim flokkum sem átt hafa fulltrúa á þingi í gegnum tíðina. Tólf konur hafa þannig orðið ráðherrar fyrir Sjálfstæðisflokkinn, sjö fyrir Framsóknarflokkinn, sex fyrir Samfylkinguna, fimm fyrir Vinstri græna, þrjár fyrir Viðreisn, tvær fyrir Flokk fólksins, tvær fyrir Alþýðuflokkinn og ein fyrir Bjarta framtíð. Þá var ein kona, Ragna Árnadóttir, ráðherra utan flokka. Þó tölurnar fyrir Samfylkinguna og Alþýðuflokkinn séu lagðar saman væri fjöldinn einungis átta eða þriðjungi minni en í tilfelli Sjálfstæðisflokksins.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Stytta Ingibjargar H. Bjarnason alþingismanni fyrir utan Alþingishúsið. Eigandi: Anna Kudryavtseva)

