Vantraust Viðreisnar á eigin þingflokk?

Fæstar ráðherraskipanirnar koma á óvart og til að mynda að miklu leyti í samræmi við spá mína á Stjórnmál.is á dögunum. Hins vegar er áhugavert að Viðreisn hafi kosið að leita út fyrir þingflokk sinn og skipa utanþingsráðherra. Daða Má Kristófersson, varaformann flokksins, sem verður fjármálaráðherra. Venjulega er slíkt ekki gert nema sem nokkurs konar örþrifaráð við óvenjulegar aðstæður. Fyrir vikið hefur úrræðinu aðeins verið beitt í undantekningartilfellum.

Fyrir það fyrsta er ljóst að utanþingsráðherrar hafa ekki lýðræðilegt umboð frá kjósendum líkt og nafnið gefur til kynna. Í raun er staða Daða Más fyrir vikið einungis á við hvern annan embættismann hvað það varðar. Aðspurð um þetta í samtali við mbl.is í gær kom Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sér undan því að svara spurningunni beint en sagði Daða Má hafa „ríkt umboð frá flokkn­um.“ Skipun hans hefði þannig verið samþykkt af stofnunum Viðreisnar.

Mögulega þarf ekki að koma á óvart að Þorgerði þyki eðlilegt að háttsettir valdamenn hafi ekki lýðræðislegt umboð enda hlynnt inngöngu Íslands í Evrópusambandið þar sem slíkt er regla fremur en undantekning. Vísir.is hafði eftir henni í gær að valið á ráðherrum Viðreisnar hefði verið erfitt þar sem þingflokkurinn „væri skipaður mjög öflugu fólki.“ Greinilega engum þó nógu hæfum í fjármálaráðuneytið. Erfitt er að túlka útspilið sem annað en vantraust á þingflokkinn.

Flestir reiknuðu með því að Þorgerður færi í fjármálaráðuneytið sem hefur verið álitið annað mikilvægasta ráðuneytið frá falli viðskiptabankanna haustið 2008. Það ætlaði hún að eigin sögn að gera þar til í fyrradag. Minni postular en flokksformenn hafa síðan setið í utanríkisráðuneytinu utan þann skamma tíma sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, skipti um ráðuneyti við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur eftir að hafa sagt af sér sem fjármálaráðherra.

„Við treystum þjóðinni,“ sögðu Þorgerður Katrín og fleiri frambjóðendur Viðreisnar í kosningabaráttunni og vísuðu þar til Evrópusambandsins. Að vísu forðuðust þau eins og heitan eldinn að ræða sambandið fyrir kosningar og gripu nær eingöngu til frasans þegar þau voru þráspurð út í málið. Þjóðinni var þó greinilega ekki treystandi til þess að hafa eitthvað um það að segja hver fara myndi með völdin í því mikilvæga ráðuneyti sem fjármálaráðuneytið óneitanlega er.

Hitt er svo annað mál að Þorgerður gekkst við því í kosningabaráttunni að hún vildi í raun ekki leggja Evrópusambandsmálið í þjóðaratkvæði. Markmiðið hefur hins vegar ljóslega verið að nýta sér þá jákvæðu afstöðu sem fólk hefur gjarnan til þjóðaratkvæðagreiðslna til þess að reyna að koma málinu eitthvað áfram vitandi að það sjálft er ekki ofarlega á lista fólks. Það segir auðvitað sitt um málstaðinn og trú umræddra einstaklinga á honum og stuðningi við hann.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)