Fylgið fer vegna bókunar 35

Fyrir liggur að mikil andstaða er í röðum stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins við það að fest verði í lög að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn gangi framar löggjöf sem á sér innlendan uppruna eins og til stendur með frumvarpi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar. Mál sem kennt hefur verið við bókun 35 við samninginn. Miðað við niðurstöður skoðanakönnunar sem gerð var af Prósent síðasta haust reyndist mikill meirihluti stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins andvígur slíku frumvarpi af þeim sem tóku afstöðu með eða á móti.

Miðað við niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Maskínu á fylgi stjórnmálaflokkanna eykst fylgi Miðflokksins tæpan þriðjung frá mælingu fyrirtækisins í síðasta mánuði og fer út 9,7% í 13% á sama tíma og fylgi Sjálfstæðisflokksins fer úr 18,9% í 17,3%. Munurinn er því einungis 4,3% en var rúm 9% í síðasta mánuði. Hvað gerðist í millitíðinni? Tvö mál hafa fyrst og fremst verið í kastljósinu. Frumvörp ríkisstjórnarinnar um hækkun veiðigjalda og bókun 35. Báðir flokkar hafa beitt sér gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um veiðigjöldin en nær einvörðungu Miðflokkurinn gegn frumvarpinu um bókun 35.

Fylgisaukning Miðflokksins vegna bókunar 35 á kostnað Sjálfstæðisflokksins kemur því miður ekki á óvart eins og áður er komið inn á með vísan í skoðanakönnunina síðasta haust. Þingmenn okkar sjálfstæðismanna hafa komið inn í umræðuna á þingi um málið annað slagið til þess að ræða fundarstjórn forseta vegna annarra mála en nær undantekningalaust ekki vikið gagnrýnisorði á frumvarp utanríkisráðherra sem ljóslega hefur ekki farið framhjá fólki enda verið mikið í umræðunni. Sjálfur varaði ég við þessari líklegu þróun mála í pistli sem birtist á Stjórnmálin.is fyrir rúmum tveimur vikum.

Haldið var uppi vörnum í málinu framan af á vakt Sjálfstæðisflokksins í utanríkisráðuneytinu þar til skipt var um ráðherra eftir þingkosningarnar 2021 og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tók við. Þar með varð alger viðsnúningur í málinu. Tekið var allt í einu undir kröfur Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) gegn Íslandi sem hafði krafizt þess að forgangur innleidds regluverks frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn yrði lögfestur. Fyrirliggjandi frumvarp uppfyllir algerlega kröfu ESA og felur þannig í sér fyrirfram uppgjöf í stað þess að látið sé allavega reyna á málið fyrst fyrir EFTA-dómstólnum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)