Kristrún: „Þetta mun taka tíma“

Helzta kosningaloforð Samfylkingarinnar fyrir þingkosningarnar í lok nóvember var að flokkurinn ætlaði að beita sér fyrir því að verðbólga myndi minnka hraðar en áður og vextirnir lækka til samræmis við það. Var talað um að negla niður verðbólguna og sérstakt kosningamyndband búið til þar sem Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, var sýnd sveifla stóreflis sleggju í þeim efnum. Tal um að negla eitthvað niður felur jú í sér að það muni gerast hratt.

Hins vegar er talsvert annað uppi á teningnum núna. Verðbólgan hefur þannig minnkað hægar eftir að núverandi ríkisstjórn tók við völdum og að sama skapi hægst á lækkun vaxta. Nokkuð sem átti að vera á hinn veginn miðað við málflutning Kristrúnar og Samfylkingarinnar fyrir kosningarnar. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, gerði þetta að umtalsefni í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi á dögunum og spurði Kristrúnu frétta af sleggjunni.

Kristrún svaraði því hins vegar einungis að taka myndi tíma að ná niður verðbólgunni og vöxtunum. „Auðvitað myndi ég gjarnan vilja sjá vexti lækka hraðar. Ég mundi gjarnan vilja sjá verðbólgu lækka hraðar en þetta mun taka tíma. Við munum þurfa að vera á tánum þegar að þessu kemur. […] Þetta verður ævarandi verkefni þessarar ríkisstjórnar. Ég myndi vilja sjá okkur gera enn þá fleiri og betri hluti en ég tel okkur fara vel af stað.“ Sleggjan, góðir lesendur, sleggjan.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, sveiflar sleggjunni í kosningamyndbandi flokksins. Eigandi: Skjáskot)