„Frá byrjun var stefnumál félagsins að Ísland skyldi annast sín mál sjálft, það er barátta sem við erum enn að heyja, núna í umræðu um Evrópusambandið,“ sagði Viktor Pétur Finnsson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, í samtali við mbl.is í dag í tilefni af 95 ára afmæli sambandsins sem fagnað var á Þingvöllum þar sem það var stofnað árið 1930. Enn fremur frelsi einstaklingsins, lægri skattar og þjóðleg og víðsýn stefna með hagsmuni allra stétta fyrir augum.
Frá upphafi hefur SUS haft það mikilvæga hlutverk að veita Sjálfstæðisflokknum aðhald þegar kemur að hugmyndafræði hans. Sjálfur var ég í SUS í mörg ár og sat þá til að mynda um tíma í utanríkismálanefnd sambandsins. Eins og Viktor kom réttilega inn á lýkur baráttunni fyrir frelsinu aldrei enda verða þeir alltaf til því miður sem vilja skerða frelsi annarra og þá jafnvel gera það að engu. Þegar frelsi hefur áunnizt þarf að standa vörð um það og tryggja að það glatist ekki aftur.
Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið fengi Ísland sex þingmenn á þingi þess af yfir 700. Á við hálfan þingmann á Alþingi. Staðan yrði margfalt verri í ráðherraráðinu, valdamestu stofnun sambandsins, þar sem vægi landsins yrði allajafna einungis á við 5% af alþingismanni. Eins og fram kemur á vef Evrópusambandsins eru langflestar ákvarðanir ráðsins teknar þar sem vægi ríkja þess fer fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra. Þetta yrði svonefnt sæti við borðið.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Frá Þingvöllum. Eigandi: Eric Spenle)

