Fylgisaukning Samfylkingarinnar frá síðustu þingkosningum miðað við skoðanakannanir rímar vel við fylgistap hinna tveggja stjórnarflokkanna, Flokks fólksins og Viðreisnar. Samfylkingin hefur þannig bætt við sig 11 prósentustigum samkvæmt niðurstöðum nýjustu könnunar Gallups á sama tíma og hinir tveir stjórnarflokkarnir hafa samanlagt tapað 9,4 prósentustigum. Þá einkum Flokkur fólksins. Miðað við niðurstöður nýjustu könnunar Maskínu hefur Samfylkingin hins vegar bætt við sig 7,3 prósentustigum á meðan hinir flokkarnir tveir hafa tapað 7,7 prósentustigum.
Með öðrum orðum liggur beinast við að draga þá ályktun að fylgisaukning Samfylkingarinnar sé fyrst og fremst á kostnað samstarfsaðila flokksins í ríkisstjórn. Fylgið sem stjórnarflokkarnir eru að bítast um er væntanlega einkum kjósendur sem áður studdu Vinstri græna en geta ekki lengur hugsað sér að kjósa þann flokk og heldur ekki stjórnarandstöðuflokkana þrjá, Sjálfstæðisflokkinn, Miðflokkinn og Framsóknarflokkinn. Gera má ráð fyrir að það fylgi sé á bilinu 8-10% miðað við það fylgi sem Vinstri grænir nutu að jafnaði áður og þess sem þeir mælast með núna.
Miðað við kannanir undanfarin ár jókst fylgi Samfylkingarinnar einkum á kostnað Vinstri grænna og var komið í um 30% þegar það mældist mest. Allt þar til skömmu fyrir þingkosningarnar í lok nóvember þegar fylgi við Flokk fólksins jókst á kostnað Samfylkingarinnar. Fylgi Samfylkingarinnar hefur nú aftur aukizt aðallega á kostnað Flokks fólksins sem fyrr segir. Fyrrum stuðningsmenn Vinstri grænna hafa ekki marga kosti eins og staðan er í dag. Hvert hneykslið hefur fylgt öðru hjá Flokki fólksins og Sósíalistaflokkurinn er í upplausn. Á þessu hagnast Samfylkingin.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
