Mikið hefur verið rætt um stóra valdaframsalsmálið (bókun 35 við EES-samninginn) undanfarin misseri en vafalaust klóra ófáir sér í kollinum yfir því um hvað þetta blessaða mál snúizt. Í sem styztu máli hverfist það um það hvort lögfesta eigi að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn gangi framar almennum lögum sem eiga sér innlendan uppruna. Verði frumvarpið að lögum verður þannig til ný forgangsregla í íslenzkum rétti sem ólíkt þeim forgangsreglum sem fyrir eru hér á landi þegar almenn lagasetning er annars vegar, þar sem yngri lög ganga fyrir þeim sem eldri eru og sértækari lög fyrir almennari, mun miðast við það eitt að um sé að ræða innleitt regluverk frá sambandinu.
Forsaga málsins er sú að þegar samið var um EES-samninginn, sem er samningur á milli Fríverzlunarsamtaka Evrópu (EFTA) sem Ísland á meðal annars aðild að og Evrópusambandsins, fyrir rúmum þremur áratugum síðan gerði sambandið kröfu um það að EFTA-ríkin sem gerðust aðilar að samningnum samþykktu að innleitt regluverk frá því gengi framar þeirra lagasetningu. Þessu höfnuðu EFTA/EES-ríkin, ekki sízt Ísland, einkum á þeim forsendum að í því fælist framsal löggjafarvalds sem samræmdist ekki stjórnarskrám þeirra. Fyrir vikið varð bókun 35 til þar sem fram kemur að ríkin framselja ekki löggjafarvald sitt en komi upp árekstur í þessum efnum þurfi að tryggja forgang hins innleidda regluverks.
Tryggja þurfti stuðning við EES
Til þess að ekki þyrfti að breyta stjórnarskránni í þessum efnum vegna samþykktar EES-samningsins, sem hefði að öllum líkindum þýtt að ekki hefði verið nægur stuðningur við aðildina að samningnum á Alþingi, var bókunin innleidd í íslenzk lög með 3. grein laga um Evrópska efnahagssvæðið þar sem segir að skýra skuli lög og reglur, að svo miklu leyti sem við eigi, til samræmis við samninginn og þær reglur sem á honum byggi. Sameiginlegur skilningur var á milli samningaaðila um að standa þyrfti að málum með þessum hætti af pólitískum ástæðum til þess að hægt yrði að komast hjá því að breyta stjórnarskránni og tryggja þannig nægan stuðning við málið. Þá einkum í röðum þingmanna Sjálfstæðisflokksins.
Hvað varðar efni bókunar 35 var litið svo á að ákveðin mótsögn væri fyrir hendi í þeim efnum þar sem í fyrri hluta hennar væri tekið fram að hún fæli ekki í sér framsal löggjafarvalds en í seinni hlutanum að grípa þyrfti til ráðastafana ef árekstur yrði á milli innleidds regluverks í gegnum EES-samninginn og innendrar löggjafar þannig að innleidda regluverkið hefði forgang sem fyrr segir. Virtir lögspekingar eins og Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor emeritus, hafa bent á það að fyrir vikið hefði verið litið svo á að seinni hlutinn hefði í raun ekki mikið gildi þar sem hann samrýmdist ekki fyrri hlutanum. Var fyrir að fara sameiginlegum skilningi samningsaðila í þessum efnum sem engin athugasemd var gerð við.
Fer í bága við stjórnarskrána
Með þessum hætti virkaði EES-samningurinn í um 20 ár frá samþykkt hans allt þar til árið 2012 þegar Eftirlitsstofun EFTA (ESA), sem hefur það meginhlutverk að fylgjast með réttri framkvæmd EFTA/EES-ríkjanna á samningnum, fór fram á það að íslenzk stjórnvöld útskýrðu hvernig bókun 35 hefði verið innleidd á Íslandi. Mikil samskipti fóru fram í kjölfarið þar sem íslenzkir ráðamenn vörðu þá leið sem farin var í því sambandi. Fimm árum síðar lýsti stofnunin yfir þeirri afstöðu sinni að ekki hefði verið staðið rétt að málum í þeim efnum þrátt fyrir þá staðreynd að hún hafði þá ekki gert athugasemd við það í tæpa tvo áratugi en hlutverk hennar er sem fyrr segir að hafa eftirlit með framkvæmd samningsins.
Meðal þess sem íslenzk stjórnvöld bentu á var að ekki hefði verið hægt að ganga lengra innan ramma stjórnarskrárinnar. Þetta hafa lögspekingar eins og til dæmis hæstaréttardómararnir fyrrverandi Markús Sigurbjörnsson og Jón Steinar Gunnlaugsson sömuleiðis vakið máls á. Breyta þyrfti stjórnarskránni ef lögfesta ætti forgang innleidds regluverks frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn. Sömuleiðis var vísað til þess að ESA hefði enga athugasemd gert við umrætt fyrirkomulag í um tvo áratugi þegar skyndilega hefði komið til þess. Fór engu að síður svo að ESA lýsti þeirri afstöðu sinni sem fyrr segir að ekki hefði verið staðið rétt að þeim málum og hótaði Íslandi samningabrotamáli fyrir EFTA-dómstólnum.
Skyndilega snúið við blaðinu
Haldið var uppi vörnum í málinu af hálfu íslenzkra stjórnvalda, lengst af í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins, allt þar til eftir þingkosningarnar 2021 þegar nýr utanríkisráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sneri allt í einu við blaðinu og kaus að taka undir kröfur ESA gegn Íslandi. Engar haldbærar skýringar hafa í raun fengizt á þeirri stefnubreytingu. Þórdís lagði fram frumvarp 2023 sem fól í sér innleiðingu bókunar 35 í samræmi við kröfu ESA en það náði ekki fram að ganga. Til stóð að leggja frumvarpið fram aftur síðasta haust en ekki varð af því. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, eftirmaður Þórdísar og formaður Viðreisnar, lagði síðan fram sambærilegt frumvarp í upphafi þessa árs og hyggst nú gera það aftur.
Frumvarpið uppfyllir sem fyrr segir að fullu kröfu ESA. Að öðrum kosti mun stofnunin vitanlega halda samningsbrotamáli sínu áfram gegn Íslandi. Tal um að frumvarpinu sé ætlað að tryggja frumkvæði stjórnvalda í málinu stenzt því enga skoðun. Hið sama á við um orðalag í frumvarpinu þess efnis að forgangurinn eigi aðeins við ef Alþingi ákveður ekki annað. Vitanlega getur þingið sett lög sem fara gegn EES-samningnum en þá færi einfaldlega í gang sama ferli og nú stendur til að beygja sig fyrir, hótun ESA um samningsbrotamál. Hvaða líkur geta talizt á því að þingmenn muni samþykkja að fara gegn samningnum varðandi einstaka innleidda lagagerð ef þeir ætla ekki að standa í fæturna nú þegar allt regluverkið er undir?
Tökum aftur upp fullar varnir
Kæmi til þess að frumvarp Þorgerðar næði ekki fram að ganga og málið færi hugsanlega í framhaldinu fyrir EFTA-dómstólinn væri það versta sem gæti gerzt að dómstóllinn kæmist að þeirri niðurstöðu að Ísland hefði brotið gegn EES-samningnum með því að innleiða ekki bókun 35 með þeim hætti sem ESA hefur gert kröfur um. Það er að segja nákvæmlega það sem frumvarpið felur í sér. Vangaveltur um að EFTA-dómstóllinn kynni að gera frekari kröfur til Íslands standast enga skoðun. Ljóst er með tilliti til efnis bókunar 35 að ESA er að fara fram með ítrustu kröfur í þeim efnum. Þá er hlutverk dómstólsins í þessum efnum eingöngu það að kveða upp úrskurð um það hvort brotið hafi verið gegn EES-samningnum.
Með öðrum orðum er þannig um að ræða fyrirfram uppgjöf án þess að látið sé í það minnsta reyna á málið fyrst fyrir dómi. Fari málið fyrir EFTA-dómstólinn er að minnsta kosti möguleiki á því að niðurstaðan verði Íslandi hagfelld en verði frumvarpið samþykkt verður sá möguleiki ljóslega að engu gerður. Við höfum engu að tapa en allt að vinna. Við gerðumst aðilar að EES-samningnum á ákveðnum forsendum sem sameiginlegur skilningur var um á milli samningsaðila og engar athugasemdir voru gerðar við í um tvo áratugi þegar sú varð allt í einu raunin. Krafa ESA felur í sér algeran forsendubrest í þeim efnum. Við höfum góðan málstað að verja og eigum að sjálfsögðu að taka á ný upp fullar varnir vegna málsins.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Birtist áður í Morgunblaðinu 16. september 2025)
(Ljósmynd: Utanríkisráðuneytið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
