Komi til þess að beitt verði ákvæði þingskaparlaga sem heimilar forseta Alþingis að stöðva umræður í þinginu verður með því sett nýtt fordæmi í þeim efnum sem stóreykur líkurnar á beitingu þess þegar núverandi stjórnarflokkar verða komnir í stjórnarandstöðu. Núverandi fordæmi er 60 ára gamalt. Þetta er ekki sízt vandi stjórnarmeirihlutans.
Mjög langur vegur er einu sinni frá því að til dæmis Samfylkingin hafi ekki beitt málþófi á Alþingi í gegnum tíðina þó fulltrúar flokksins vilji alls ekki kannast við það í dag. Til að mynda vegna þingsályktunartillögu um að draga umsókn um inngöngu í Evrópusambandið til baka 2014, vatnalögum og fjölmiðlafrumvarpinu og mun sjálfsagt gera það aftur.
Hinn vandinn er sá að beiting ákvæðisins væri ekki beinlínis til þess fallin að bæta starfsandann á Alþingi. Þvert á móti myndi beiting þess miklu fremur auka líkurnar á frekara málþófi síðar. Með öðrum orðum væri um aðstæður að ræða þar sem vandamál augnabliksins yrði ef til vill leyst en um leið sköpuð miklu stærri vandamál til framtíðar.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
