Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi og framkvæmdastjóri Flokks fólksins, sagðist í skriflegu svari til fréttastofu Sýnar í gær hafa beðið löglærðan starfsmann flokksins að óska eftir upplýsingum frá rannsóknarsviði skrifstofu Alþingis um 71. grein þingskapalaga, svonefnt kjarnorkuákvæði, fyrir rúmum tveimur mánuðum. Umræddu ákvæði var sem kunnugt er beitt í fyrsta sinn í áratugi fyrir helgi til þess að stöðva umræður í þinginu um frumvarp ríkisstjórnarinnar um veiðigjöld.
Hins vegar var að sögn Heimis engin sérstök ástæða fyrir því að óskað var eftir umræddum upplýsingum. „Okkur þótti þetta alls ekki merkilegt, bara hluti af daglegum störfum okkar starfsmanna. Við erum oft í viku í alls kyns samskiptum, mest munnlegum, við starfsmenn á öllum sviðum skrifstofu Alþingis.“ Hins vegar var ekki um munnleg samskipti að ræða um þetta, að sögn Heimis, ómerkilega mál heldur þvert á móti beiðni um formlegt minnisblað frá rannsóknasviðinu.
Minnisblaðinu var skilað 7. maí þegar fyrsta umræða um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar var nýlega hafin og eins önnur umræða um frumvarp ríkisstjórnarinnar um bókun 35 við EES-samninginn. Fyrsta umræðan um bókunina hafði aðeins tekið rúmlega tvo og hálfan tíma á einum þingfundi. Viðræður um þinglok voru ekki einu sinni hafnar. Ekkert tilefni var því til þess að einu sinni íhuga beitingu ákvæðisins sem þó var greinilega þá þegar til skoðunar hjá ríkisstjórnarflokkunum.
Með öðrum orðum verður ekki betur séð en að alltaf hafi staðið til að beita ákvæðinu af hálfu ríkisstjórnarinnar. Fyrst hefur þó væntanlega verið talið nauðsynlegt að skapa réttu aðstæðurnar til þess að réttlæta beitingu þess. Þær skýringar Heimis að hann hafi tekið það upp hjá sjálfum sér af engri sérstakri ástæðu að óska eftir minnisblaði um ákvæðið frá rannsóknasviðinu geta ekki talizt sérlega trúverðugar. Telja verður líklegra að hann sé einfaldlega að kasta sér á sverðið.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
