Telja verður nokkuð merkilegt að Samfylkingin skuli hafa ákveðið að kaupa og birta skoðanakönnun um það hversu ánægt fólk sé með ráðherra ríkisstjórnarinnar sem viðbúið var að kæmi verst út fyrir ráðherra Flokks fólksins. Ólíklegt er að könnunin hafi verið keypt án vitneskju Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar.
Kristrún er efst á blaði í könnuninni sem Gallup framkvæmdi og þar á eftir koma samflokksmenn hennar Jóhann Páll Jóhannsson og Alma Möller. Þá Viðreisnarráðherrarnir Daði Már Kristófersson, Hanna Katrín Friðriksson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Samfylkingarráðherrann Logi Már Einarsson.
Botnsætin verma síðan ráðherrar Flokks fólksins. Þau Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson og Inga Sæland en langmest óánægja er með Ingu af ráðherrum stjórnarinnar. Hver var tilgangurinn með kaupum á slíkri könnun nema til þess að hampa Kristrúnu og öðrum ráðherrum Samfylkingarinnar einkum á kostnað ráðherra Flokks fólksins?
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)

