Mæting Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í atkvæðagreiðslur á Alþingi á þinginu sem lauk fyrir tæpri viku hefur vakið talsverða athygli en skemmst er frá því að segja að hún hefur varla sést þar. Fram kemur á vef Alþingis að í tæplega 80% tilfella hafi hún ekki verið á staðnum. Þar af verið fjarverandi í tæplega 60% tilfella en annars með skráða fjarvist. Þá hefur Þórdís þrátt fyrir þessa miklu fjarveru sína varla kallað inn varamann.
Meðal annars hefur vakið athygli að mæting Þórdísar hefur verið miklu verri nú en þegar hún var utanríkisráðherra og þá oft erlendis. Þórdís mun að sama skapi hafa verið mikið erlendis á síðasta þingi en miklu meira en í ráðherratíð sinni. Skýringin á fjarveru Þórdísar mun ekki sízt vera sú að í byrjun febrúar var hún skipuð sérstakur sendifulltrúi framkvæmdastjóra Evrópuráðsins um stöðu barna í Úkraínu. Stöðu sem tengist á engan hátt þingstörfum hennar.

Miðað við vef Alþingis kallaði Þórdís inn varaþingmann tvisvar á nýafstöðnu þingi sem hófst í byrjun febrúar. Þannig kom Árni Helgason inn á þing fyrir hana dagana 17.-23. febrúar og Ragnhildur Jónsdóttir 21.-27. maí. Hins vegar liggur fyrir að Þórdís var fjarverandi miklu lengur en sem því nemur. Eftir að tilkynnt var um skipun Þórdísar í stöðu sendifulltrúa Evrópuráðsins sagðist hún ætla að gegna störfunum samhliða. Það hefur hins vegar greinilega ekki gengið nógu vel.
Talsverð umræða hefur skapast um málið í röðum sjálfstæðismanna þar sem forgangsröðun Þórdísar hefur verið gagnrýnd. Þó verkefnið fyrir Evrópuráðið væri góðra gjalda vert væri hún engu að síður á launum hjá skattgreiðendum sem þingmaður og bæri að sinna þeim störfum fyrst og fremst. Annað gæti þess utan ekki talizt sérlega hægrisinnað. Þá væri þingmönnum skylt samkvæmt lögum um þingsköp að sækja alla þingfundi nema nauðsyn kæmi í veg fyrir það.
Hefur verið rifjað upp þegar Þórdís hrökklaðist úr stöðu oddvita Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi síðasta haust ekki sízt vegna þess að hún hafði varla sést þar. Nú léti hún varla sjá sig á Alþingi. Heyrzt hafi að hún hyggðist láta af þingstörfum þegar hún hefði tryggt sér launað starf á alþjóðavettvangi en staðan hjá Evrópuráðinu er ólaunuð. Til dæmis hafi hún lýst yfir áhuga á því við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra að verða sendiherra.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Eigandi: European People’s Party – Creative Commons Attribution 2.0 Generic)

