„Vitanlega er ESB ekki lokaður pakki“

„Vitanlega er Evr­ópusambandið ekki lokaður pakki. Þið vitið hvað þið væruð að fara út í. Og ef þið eruð ekki reiðubúin til þess, haldið ykkur þá fyrir utan sambandið. Það er það bezta sem þið getið gert,“ sagði Uffe heitinn Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, í viðtali við mbl.is í marz 2017 en hann var mikill stuðningsmaður þess að Ísland gengi í Evrópusambandið. Spurður út í þann málflutning skoðanasystkina sinna hér á landi að sækja þyrfti um inngöngu í sambandið til þess að „kíkja í pakkann“ sagði hann einfaldlega: „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum.“

Meðal þeirra sem hafnað hafa málflutningnum um lokaða pakkann eru fulltrúar Evrópusambandsins sjálfs. Þannig sagði til að mynda Olli Rehn, þáverandi stækkunarráðherra sambandsins, í samtali við Morgunblaðið 10. september 2009, spurður hvort spilin yrðu loksins lögð á borðið af hálfu þess og upplýst hvað væri í boði eftir að þáverandi ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hafði sótt um inngöngu í sambandið: „Ef ég nota myndlíkingu þína þá eru spil Evrópusambandsins þegar á borðinu, fyrir allra augum. Það er að segja regluverk sambandsins og meginreglur þess.“

Fulltrúar Evrópusambandsins hafa enn fremur lýst því yfir að ekki sé í boði að sækja um inngöngu í sambandið einungis til þess að sjá hvað kunni að vera í boði líkt og til að mynda Štefan Füle, arftaki Rehns, gerði á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í október 2011. Markmiðið verði að vera að ganga þar inn. Velta má fyrir sér hvaða hagsmuni til dæmis Ellemann-Jensen, sem var afar hlynntur inngöngu Íslands í Evrópusambandið, hefði haft af því að segja að sambandið væri ekki lokaður pakki ef það væri ekki einfaldlega sannleikurinn? Svarið við því er auðvitað ekki flókið: Alls enga.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Uffe Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur. Eigandi: Evgenia Levin – Baltic Development Forum – Creative Commons Attribution 2.0 Generic)