Viðreisn getur ekki setið á sér

Fyrr á þessu ári undirritaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, samkomulag við Evrópusambandið sem meðal annars felur í sér að Ísland aðlagi sig að utanríkisstefnu sambandsins. Þar segir með skýrum hætti: „Aðlögun að utanríkisstefnu ESB […] aðlögun EFTA/EES-ríkjanna að ákvörðunum, yfirlýsingum og refsiaðgerðum ESB.“ Síðan hefur ríkisstjórnin einnig kynnt samkomulag um sjávarútvegs- og varnarmál við sambandið.

Formaður Viðreisnar hefur þvertekið fyrir það að samkomulagið um utanríkismálin feli í sér aðlögun að utanríkisstefnu Evrópusambandsins þrátt fyrir að það komi skýrt fram í texta þess sem fyrr segir. Væntanlega hefur Þorgerður þá ekki vitað hvað hún var að undirrita. Það verður þó að teljast afar ólíklegt. Þá hefur hún haldið því fram að samkomulagið þurfi vegna EES-samningsins. Ekkert í samningnum kallar hins vegar á aðlögun að utanríkisstefnu sambandsins.

Hvað varðar sjávarútvegs- og varnarmálin er þar einnig um að ræða viðleitni til aðlögunar að stefnumótun Evrópusambandsins á þessum sviðum. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra og þingmaður Viðreisnar, beitti sér fyrir samkomulaginu um sjávarútvegsmálin sem fyrir utan aðlögun opnar ákveðnar dyr fyrir sambandið til þess að hafa áhrif á þróun þess málaflokks hér á landi. Þá er samkomulagið um varnarmálin líkt og um utanríkismálin að undirlagi Þorgerðar.

Viðreisn getur greinilega ekki setið á sér og beðið eftir því fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla ríkisstjórnarinnar, um það hvort stefna skuli að inngöngu í Evrópusambandið, hafi farið fram sem gerast á fyrir lok árs 2027 samkvæmt stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar. Þorgerður hefur ekki leynt löngun sinni til þess að halda þjóðaratkvæðið sem allra fyrst. Til þess gæti hæglega komið enda óttast Viðreisnarmenn og fleiri Evrópusambandssinnar að tíminn vinni ekki með þeim.

Með öðrum orðum treystir Viðreisn ekki þjóðinni til þess að kjósa um málið síðar. Og varla nú. Reyndar vill flokkurinn ekki þjóðaratkvæðið í raun. Þorgerður lýsti því þannig yfir fyrir síðustu þingkosningar að atkvæðagreiðslan væri mikil málamiðlun af hálfu hans. Helzt vildi Viðreisn fara beint í nýtt umsóknarferli án aðkomu kjósenda. Þjóðaratkvæðið er einfaldlega örþrifaráð flokksins til þess að reyna að komast í kringum þann veruleika að þingmeirihluti er ekki fyrir málinu.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undirritar samkomulagið um utanríkismál. Eigandi: EFTA)