Fimmtán þúsund blaðsíður

Varað var við flækjustigi regluverks sem gildir um fjármálastarfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu, sem Ísland á aðild að í gegnum EES-samninginn, í bréfum sem Seðlabankinn og systurstofnanir hans á Norðurlöndunum sem sinna fjármálaeftirliti sendu Bankaeftirliti Evrópusambandsins í maí. Brýnt væri að leita leiða til þess að einfalda regluverkið.

Fram kemur í frétt Viðskiptablaðsins að Seðlabankinn og hinar norrænu stofnanirnar hefðu sent áþekkt bréf síðasta sumar til fjármálaeftirlitsstofnana Evrópusambandsins þar sem lýst hafi verið áhyggjum af íþyngjandi flækjustigi regluverks um fjármálamarkaði og hvatt til einföldunar á því við upphaf nýs kjörtímabils á þingi sambandsins síðasta haust.

„Regluverk um fjármálastarfsemi innan Evrópu telur um 15.000 blaðsíður,“ segir í fréttinni og er þar vitnað til skýrslu Evrópsku bankasamtakanna (EBF) „Less is more“. Regluverkið væri sérlega íþyngjandi fyrir fámenn ríki á borð við Ísland. Fjórðungur reglugerða innan EES fjallaði um fjármálageirann og tugir hafi bætzt við að meðaltali árlega undanfarin ár.

Fram kemur einnig í skýrslunni að þrátt fyrir yfirlýsingar Evrópusambandsins um að undið yrði ofan af regluverkinu virtust vera sterkir hvatar í átt að sífellt ítarlegra regluverki. Þá hafa forstöðumenn norrænna fjármálaeftirlita sagt regluverkið svo flókið og umfangsmikið að það kæmi í veg fyrir að stofnanirnar gætu sinnt eftirlitshlutverkum sínum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fánar aðildarrríkja EFTA ásamt fána Evrópusambandsins. Eigandi: EFTA)