Gleðileg jól og þakkir fyrir lesturinn!

Kæru lesendur og landsmenn allir. Ég óska ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Með miklum þökkum fyrir lesturinn á árinu eða öllu heldur í mánuðinum enda hóf vefsíðan göngu sína í byrjun hans. Gaman er frá því að segja að viðtökurnar á þessum skamma tíma hafa verið langt umfram væntingar. Mörg hundruð innlendra gesta heimsækir síðuna þegar daglega og innlitin og flettingarnar eru enn fleiri. Fer aðsóknin jafnt og þétt vaxandi. Mínar beztu þakkir fyrir það!

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Jólatré. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)