Mikill munur hefur verið á málflutningi ríkisstjórnarinnar og stuðningsmanna hennar vegna tollahækkana Bandaríkjastjórnar fyrr á árinu og fyrirhuguðra tollahækka Evrópusambandsins nú. Á meðan tollahækkanir Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, voru allt að því fordæmdar af skiljanlegum ástæðum hafa stjórnarliðar að undanförnu þvert á móti lagt sig í líma við að bera í bætifláka fyrir framgöngu sambandsins og fundið henni flest til afsökunar.
„Þessi staða kemur upp því það eru ýmis Asíuríki eins og Kína, Kasakstan og Indland sem eru með offramleiðslu og eru að undirbjóða þessar vörur inn á markað ESB,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, til dæmis við Vísi um liðna helgi. Sagði hún sambandið þannig íhuga verndartolla vegna slæmrar stöðu á markaði fyrir kísiljárn. Hið sama á til að mynda við um Dóru Sif Tynes, lögmann og fyrrverandi varaþingmann Viðreisnar.
„Samkvæmt almennum reglum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar þá eru almenn ákvæði um að gæta jafnræðis. Menn gætu verið að horfa á það þannig að út frá öðrum fríverslunarsamningum sem ESB hefur gert þá sé erfitt fyrir þá að sleppa bara þessum tveimur löndum,“ sagði Dóra Sif þannig við Vísi um helgina. „Þannig er þetta kannski bara merki um að Evrópusambandið sé betur að sér í EES-samningnum heldur en oft áður,“ sagði hún við Ríkisútvarpið síðar sama dag.
Fram kom enn fremur í máli Dóru Sifjar, og hefur einnig komið fram hjá Þorgerði Katrínar, að ástæða þess að Evrópusambandið væri að íhuga að leggja verndartolla á Íslandi væri sú að landið væri ekki innan tollabandalags sambandsins. Væri Ísland hins vegar innan þess væri ekki aðeins mun hærri tollur á útfluttar vörur til Bandaríkjanna heldur væru tollar Evrópusambandsins hindrun í viðskiptum við ófá ríki utan sambandsins sem eru miklu fremur markaðir til framtíðar.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Utanríkisráðuneytið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
