Verður ekki bæði sleppt og haldið

„Fyrir utan vinnu erlendis sem nefndarmaður í utanríkismálanefnd og þriggja manna þingmannanefnd NATO er tölfræðin þannig að á nýliðnu þingi fór tæpur helmingur allra atkvæðagreiðslna fram á fjórum dögum en þrjá af þeim var ég að gegna skyldum á vegum [Evrópu]ráðsins í þágu úkraínskra barna,“ ritaði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í grein í Morgunblaðinu í gær. Tilefnið var frétt mbl.is í liðinni viku um dræma mætingu hennar í atkvæðagreiðslur á Alþingi á nýafstöðnu þingi en hún var fjarri góðu gamni í tæplega 80% tilfella.

Hitt er annað mál að þó ekki sé tekið mið af fjölda atkvæðagreiðslna á Alþingi heldur einungis þeim fjölda daga sem þær fóru fram mætti Þórdís einungis í atkvæðagreiðslur í tíu af þeim 40 dögum þegar þær áttu sér stað. Með öðrum orðum var hún fjarverandi 75% þeirra daga þegar greidd voru atkvæði í þinginu. Annars er athyglisvert að Þórdís hafi í greininni kosið að minnast ekkert á þá staðreynd að þrátt fyrir þessa miklu fjarveru sína frá starfinu sem henni eru greidd laun fyrir að gegna af fjármunum skattgreiðenda kallaði hún einungis inn varaþingmann tvisvar, sitt hvorn vikutímann.

Fjarvera Þórdísar var sú langmesta á síðasta þingi og miklu meiri en þegar hún var utanríkisráðherra. Fjarveran stafar einkum af því að í byrjun ársins tók hún að sér áðurnefnda stöðu fyrir Evrópuráðið sem tengist á engan hátt þingstörfum hennar. Þórdís segir í greininni störfin tvö fara prýðisvel saman. Hún geti þó ekki frekar en aðrir verið á tveimur stöðum í einu. Fyrir vikið hafi hún kosið að forgangsraða starfinu fyrir ráðið fram yfir þingstörfin. „Störf þingmanna eru fjölbreytt og í mínu tilviki, vegna reynslu á alþjóðasviðinu undanfarin ár, passa þau kannski ekki alveg inn í hefðbundin hólf á Íslandi.“

Verkefnið fyrir Evrópuráðið er vafalaust góðra gjalda vert. Hins vegar er Þórdís vitanlega ekki á launum hjá íslenzkum skattgreiðendum til þess að sinna því heldur þingstörfum lögum samkvæmt. Þannig segir í 65. grein þingskaparlaga að þingmönnum sé skylt „að sækja alla þingfundi nema nauðsyn banni.“ Fyrir liggur að Þórdís getur ljóslega ekki sinnt báðum störfunum sem skyldi enda gengst hún beinlínis við því í greininni. Fyrir vikið hlýtur að liggja beinast við að Þórdís velji hvoru starfinu hún ætli að gegna og hvort starfið hún gefi frá sér. Það verður ekki bæði sleppt og haldið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Eigandi: Utanríkisráðuneyti Eistlands – Attribution 2.0 Generic)